Vilja finna lausn á vanda foreldra
„Ástandið núna er það versta sem ég hef kynnst, þegar fólk er farið að koma og banka upp á og spyrja hvort ég geti reddað því og tekið að mér aukabarn,“ segir Agnes Friðriksdóttir, dagmóðir og gjaldkeri Barnavistunar, félags dagforeldra í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Afar erfið staða ríkir í barnagæslumálum í Reykjavík og eru margir foreldrar í stökustu vandræðum með að koma börnum sínum að hjá dagforeldrum. Keðjuverkun ríkir því árgangurinn sem byrja á í leikskóla í haust er óvenjustór og útlit fyrir að leikskólapláss vanti fyrir um 400 börn.
Stjórn Barnavistunar er afar ósátt við vinnubrögð borgarstjórnar. Í ályktun frá félaginu kemur fram að innleiðing heimgreiðslu til foreldra í október 2008 hafi leitt til þess að börnum sem send voru til dagforeldra fækkaði mjög og varð það til þess að um 70 dagforeldrar hættu störfum. Að sögn Agnesar varð hins vegar hvellur síðasta haust vegna barna í stóra kreppuárganginum 2008, en dagforeldrum hefur ekki fjölgað aftur. Nú hefur svo verið ákveðið að hætta heimgreiðslunum.
Segja Oddnýju hafa farið með rangt mál
„Þetta ástand kemur dagforeldrum ekkert á óvart enda vöruðum við ítrekað við því. Þessi börn fæddust fyrir tveimur árum svo þetta er búið að vera lengi í uppsiglingu,“ segir Sigrún Edda Lövdal dagmóðir. Þær Sigrún og Agnes segja að Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar, hafi farið með rangt mál þegar hún sagði dagforeldra að meðaltali hafa hjá sér þrjú börn. Langflestir annist fimm börn, sem er löglegt hámark, þótt þau séu kannski ekki á skrá hjá borgaryfirvöldum þar sem sum séu frá nágrannabæjarfélögum.
„Dagforeldrar eru allir af vilja gerðir og við hreinlega krefjumst þess að Reykjavíkurborg semji við okkur og reyni að finna lausn á vanda foreldra, því úrræðaleysið virðist vera algjört.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Innlent Athugasemd við frétt um dagforeldra
- Fimmtudagur, 26. maí 2011, Innlent Dagforeldrum fjölgar hratt
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Innlent Harma mismun á greiðslum
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Tveggja ára börnum tryggð leikskólavist
- Miðvikudagur, 10. ágúst 2011, Innlent Gagnrýnir mismun á greiðslum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































