Vögguvísur yfir atvinnulífinu

Björk Guðmundsdóttir ræðir við Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon …
Björk Guðmundsdóttir ræðir við Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon á tröppum Stjórnarráðsins. mbl.is/Ómar

Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar standa á tröppum Stjórnarráðsins og „taka undir með þeim sem kyrja vögguvísur yfir atvinnulífinu og erlendri fjárfestingu.“ Þetta segir í pistli á vef Samtaka atvinnulífsins. Nauðsynlegt sé að stjórnvöld greiði götu erlendra fjárfestinga og efli þannig atvinnulífið.

Samtökin segja hverja nefnd stjórnvalda á fætur annarri hafa komist að þeirri niðurstöðu að fjárfesting [Magma] í HS Orku hafi verið samkvæmt lögum. Því sæti furðu að stjórnvöld taki undir með þeim sem nú mótmæli kaupunum.

Fjárfesting, þar með talin erlend, í orkufrekum iðnaði og útflutningsgreinum sé forsenda þess að hægt sé að koma atvinnulífinu á réttan kjöl á ný, og skapa hagvaxtarforsendur. Stjórnvöld verði að leggja áherslu á þessa þætti við gerð nýrra kjarasamninga.

Pistillinn á vef SA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert