Snýst um tjáningarfrelsi
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.isPersónuvernd hefur vísað frá máli Ágústs Sigurjónssonar rannsóknarlögreglumanns en hann kvartaði yfir því að þingmaðurinn Þráinn Bertelsson áframsendi bréfasendingar þeirra á milli til lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.
Talið var að málið sneri ekki að lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, sem embættið hefur eftirlit með, en frekar að því hvort Þráinn hefði farið út fyrir ramma 73. gr. stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi, og það væri dómstóla að skera úr slíkum vafaatriðum.
Forsaga málsins er sú að Ágúst sendi Þráni, ásamt átta öðrum þingmönnum, tölvupóst í nóvember síðastliðnum vegna aðkomu þeirra að þingsályktunartillögu um að fallið yrði frá kæru á hendur nímenningunum svokölluðu. Þótti honum að þeir, sem fulltrúar löggjafavaldsins, væru að hafa óeðlileg afskipti af störfum dómsvaldsins.
Niðurlag svars Þráins var á þessa leið: „Innihald skeytisins fannst mér vera með þeim hætti að það ætti erindi til yfirmanna í lögreglunni. Frábið ég mér svo frekari bréfaskipti við þig.“
Tilraun til þöggunar
Ágúst bar fram kvörtun til Persónuverndar 8. janúar, þar sem honum þótti Þráinn hvorki hafa haft tilefni né leyfi til að áframsenda póstinn. Hann hefði verið skrifaður utan vinnutíma og sendur úr einkapósthólfi en ekki í krafti starfsheitis, jafnvel þótt hann hefði talað um störf sín í tölvupóstinum.Í kvörtun sinni sagði Ágúst að miðað við það svar sem hann hefði fengið frá Þráni virtist ástæða þess að pósturinn var sendur til lögreglustjóra vera sú að Þráni líkaði ekki aðfinnslur hans „og tilgangurinn því líklegast sá að þagga niður í mér eða hefna sín á einhvern hátt“.
Út fyrir ramma stjórnarskrár?
Persónuvernd ítrekar í úrskurði sínum að hlutverk sitt sé að hafa eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 en segir enn fremur: „Þrátt fyrir að í málinu sé að finna persónuupplýsingar lýtur kjarni úrlausnarefnis þess að því hvort Þ, þingmaður, hafi með tjáningu sinni í orði og verki, þegar hann miðlaði bréfi yðar til lögreglustjóra, farið út fyrir ramma 73. gr. stjórnarskrárinnar.“Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 15. janúar 2011, Innlent Eru ekki skoðanalausir varðhundar
- Fimmtudagur, 21. júlí 2011, Innlent Mátti ekki skrá kennitölu
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Styður ekki Jón sem ráðherra
- Miðvikudagur, 28. desember 2011, Innlent LSH má verjast með sjúkraskrám fyrir dómi
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Mikill fengur að Þráni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































