Einfalt að tengja tölvur við net Alþingis

Frá Alþingi. Margrét Tryggvadóttir er fremst á myndinni. stækka

Frá Alþingi. Margrét Tryggvadóttir er fremst á myndinni. mbl.is/Heiðar

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir á vef sínum, að hún hafi oft tengt fartölvu sína við net Alþingis með sama hætti og tölva, sem fannst í húsnæði Alþingis fyrir ári, var tengd.

„Eftir kosningar leið dágóður tími þar til nýir þingmenn fengu tölvur og á meðan notaði ég bara makkann minn, tók netsnúruna úr borðtölvunni sem var þar fyrir (og úr fartölvudokkunni eftir að hún kom) og vola - ég var komin á netið! Af öryggisástæðum er þessi kostur nú ekki lengur fyrir hendi og því get ég ekki lengur ferðast í netheimum á makkanum á skrifstofunni minni," skrifar Margrét en hún er með skrifstofu í húsinu þar sem tölvan fannst.

Hún segir, að á svipuðum tíma og netsamband fyrir einkatölvur hætti að vera valkostur í húsinu hafi auðu skrifstofunni þar sem dularfulla tölvan fannst verið læst og auk þess hafi verið sett upp millihurð í andyrinu.

„Nú vitum við hvers vegna og einnig að öryggismyndavélum í húsinu hefur verið fjölgað. Við höfum hins vegar ekki fengið að vita hvaða reglur gilda um varðveislu eða eyðingu gagna úr þessum öryggismyndavélum en það þarf nauðsynlega að skýra, sérstaklega í ljósi vitnisburðar starfsmanna þingsins í máli nímenninganna sem svo einkennilega vill til að hefði verið aðalfrétt vikunnar ef stóra tölvumálið hefði ekki skutlast inn í umræðuna á síðustu stundu," segir Margrét.

Hún segir, að 28. desember 2009, daginn sem tölvunni dularfullu var stungið í samband, hafi enginn frá WikiLeaks verið á landinu. Þá segir hún marga þingmenn vera reiða vegna málsins, m.a. yfir að hafa ekki verið látnir vita og enginn var spurður um tölvuna, málið hafi bara verið þaggað niður af yfirstjórn þingsins. 

„Forseti þingsins sagði forsætisnefnd eftir að málið var opinberað í Morgunblaðinu að hún hefði aðeins sagt formönnum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks frá málinu, Jóhönnu vegna þess að hún er forsætisráðherra en Bjarna því þingflokkur hans er með skrifstofur á hæðinni. Bjarni kannast ekki við hafa verið látinn vita og forseti þingsins segir nú að hún hafi aðeins minnst lítillega á málið við hann. Þinginu öllu sagði hún að  lögregla og tölvudeild þingsins hefði beðið um að almennir þingmenn yrðu ekki látnir vita af þessu. Hvorki lögregla né tölvudeildin kannast þó við hafa sent frá sér slíka beiðni. Tölvudeildin bað þó um að málið færi ekki í fjölmiðla því yfirmenn hennar óttuðust að þingið yrði þá skotmark hakkara," segir Margrét.

Vefur Margrétar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Til sölu Bosch GCM 10 bútsög
Vel með farin bútsög með borði. Lítið notuð. Verð 140.000 kr. Upplýsingar í...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...