Styður Icesave að óbreyttu
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag, að hann myndi að óbreyttu styðja lagafrumvarp, sem liggur fyrir Alþingi um nýjan Icesave-samning.
Ögmundur sagði, að sá Icesave-samningur, sem nú liggur fyrir þinginu, sé tugum milljarða króna hagstæðari en sá sem Alþingi samþykkti í árslok 2009 en lögum um samningin var síðan hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ég mun styðja þetta að óbreyttu," sagði Ögmundur. „Jafnvel þótt ég sé mjög ósáttur við þetta mál allt í grunninn, þá held ég að ef það verður yfir okkur næstu misserin og árin muni það rífa okkur á hol. Ég held að það sé komið að því að við reynum að ljúka þessu en ég geri það ekki hvað sem það kostar. Ég ætla að sjá hvaða niðurstaða kemur út úr fjárlaganefnd og mun fara rækilega í málið í þingumræðunni."
Ögmundur var annar af tveimur þingmönnum Vinstri grænna, sem greiddu atkvæði gegn lagafrumvarpi um Icesave í desemberlok 2009. Lilja Mósesdóttir greiddi einnig atkvæði gegn samningnum.
Ögmundur sagðist í þættinum einnig vera efins um að gera eigi frekari breytingar á stjórnsýslunni og einkum væri hann efins um réttmæti þess að stofna sérstakt atvinnuvegaráðuneyti með samruna landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyta.
Ögmundur sagði að margir innan raða VG hefðu verið fylgismenn þessara breytinga en aðrir teldu ekki rétt að draga úr stjórnsýslulegu vægi ráðuneytanna þriggja eins og sakir standa.
Þá sagði Ögmundur, að málið tengdist umsóknarferlinu að Evrópusambandinu. Mestur efasemdarmaður þar væri Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og því vildu margir losna við hann úr ríkisstjórninni.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Svik fyrir völd. -
Axel Jóhann Axelsson Icesave í skiptum fyrir ráðuneyti? -
Þjóðarheiður Leiksýning í boði Vinstri-grænna. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Ögmundur vill að íslenskir skattgreiðendur borgi fjármálafimleika markaðsbrasksins. -
Óðinn Þórisson Ábyrgð vinstri stjórnarinnar á Icesave -
Kristinn Karl Brynjarsson Var Ögmundur nokkurn tímann, í hjarta sínu, á móti Icesave? -
-
Páll Vilhjálmsson Steingrímur J. vill svipta Jón ráðherradómi -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Kommúnistinn Ögmundur styður Icesave -
Magnús Sigurðsson Sér grefur gröf. -
-
Jóhannes Laxdal Baldvinsson Sykurhúð handa Ömma -
Benedikt V. Warén Ögmundur lætur Jóhönnu ekki slíta undan sér aftur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 26. febrúar 2012, Innlent Eitt mikilvægasta málið
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Stjórnin hefur ekki leyfi til að fara frá
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Ögmundur styður Jón
- Þriðjudagur, 12. janúar 2010, Innlent Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Innlent Einföld eða tvöföld kosning?
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































