Endaði í Elliðarárdal

Lögreglan varar við hálku á götum borgarinnar.
Lögreglan varar við hálku á götum borgarinnar. mbl.is/Lögreglan

Ökumaður bifreiðar var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu við Sprengisand í kvöld. Maðurinn ók í norðurátt og missti stjórn á bifreið sinni, velti henni og endaði niður í Elliðaárdal. Maðurinn er ekki alvarlega slasaður, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan varar við fljúgjandi hálku á götum borgarinnar og hvetur því ökumenn til að gæta sín í umferðinni og haga aksturshraða í samræmi við aðstæður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert