Kosningar kosta 100 tonna þorskkvóta
„Lýðræðið kostar," sagði Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna á Alþingi í dag. Sagði hann að þær rúmu 200 milljónir króna, sem kostar að halda nýjar kosningar vegna stjórnlagaþings, séu vissulega miklir peningar en í samhengi við mikilvægið sé ekki um miklar fjárhæðir að ræða. Umræða stendur enn á Alþingi um framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings, sem Hæstiréttur hefur ógilt.
„Það kostar um 100 tonna þorskkvóta að endurtaka kosningarnar. Það eru öll ósköpin," sagði Ólafur. „100 tonna þorskkvóti er vissulega mikið fyrir litlar útgerðir en fyrir heilt samfélag sem byggir tilveru sína á nýtingu auðlinda er það ekki mikið," sagði hann og hvatti til þess að nýjar kosningar fari fram um stjórnlagaþing.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði hins vegar að málið snérist um 500 milljóna klúður, um peninga sem bættu ekki framtíð skattgreiðenda. Sagðist hún mótmæla þeim orðum, sem fallið hefðu í umræðunni að engir hlutir væru brýnni en stjórnlagaþing.
„Ég held að konunni frá Selfossi, sem eignaðist barnið sitt næstum því í sjúkrabílnum en rétt náði á sjúkrahúsið á Akranesi vegna þess að það var búið að loka skurðstofunni á Selfossi og Landspítalinn var fullur, þætti það brýnna að halda skurðstofunni á Selfossi opinni," sagði Ragnheiður Elín. Hún sagði að ekki þyrfti að fara þessa leið til að breyta stjórnarskránni.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að tveir kostir virðist vera í stöðunni. Annað hvort velji Alþingi þau 25, sem kosin voru á stjórnlagaþing, í sérstaka nefnd sem leggi fram tillögur um breytingar á stjórnarskránni, eða að kosið verði aftur og bætt úr ágöllunum á fyrri kosningunni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 25. janúar 2011, Innlent Tilraunastarfsemi með stjórnarskrána
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Alþingi hefji endurskoðun stjórnarskrár
- Miðvikudagur, 26. janúar 2011, Innlent Stjórnlagaþing verið þrætuepli flokkanna frá upphafi
- Þriðjudagur, 25. janúar 2011, Innlent Steinn lagður í götu með lagakrókum
- Fimmtudagur, 24. febrúar 2011, Innlent Ekki kosið til stjórnlagaþings
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































