Kröfur um 18 til 24 mánaða samning
Samninganefnd SFR og samninganefnd ríkisins funduðu í gær. Einn af áhersluþáttum SFR, sem félagið lagi fram, er að samningar verði gerðir til 18 til 24 mánaða. Með þeim hætti væri hægt að vinna að nauðsynlegum stöðuleika til hæfilegs tíma, en binda kjarasamninga ekki of langt inn í framtíðina í því óvissa ástandi sem nú ríkir í rekstrarumhverfi ríkisins.
Einnig telur samninganefnd SFR það ekki þjóna hagsmunum launþega að gera skemmri samninga en til 18 mánaða.
Í tilkynningu frá SFR segir að á samningafundinum hafi einnig lagðar fram hugmyndir um launahækkanir sem tæki mið af ólíkum aðferðum. Þannig yrði lögð áhersla á krónutöluhækkanir á árinu 2011. Á árinu 2012 yrði síðan um prósentuhækkanir að ræða ásamt mögulegum krónutöluhækkunum. Á því ári myndi ný launatafla einnig líta dagsins ljós og stofnanasamningar yrðu endurnýjaðir.
Með þessari leið tækist að ná utan um marga áhersluþætti um lagfæringar á kaupmætti að mati samninganefndar SFR. Með krónutöluhækkun næðist að vinna að því markmiði að leggja áherslu á leiðréttingu lægstu launa, en prósentuhækkun myndi vinna að kaupmáttarleiðréttingu fyrir alla félagsmenn.
„Launatafla félagsins þarfnast endurnýjunar í ljósi þeirra samninga sem gerðir voru 2008 og 2009. Því er nauðsynlegt að vinna að breytingu á henni. Stofnanasamningar kalla einnig á endurnýjun og endurgerð. Ýmsar breytingar hafa átt sér stað í umhverfi ríkisstarfsmanna á undarförnum árum sem þarfnast skilgreiningar í stofnanasamningum. Því er afar brýnt að taka þá samninga upp ekki síðar en á tímabilinu 2011 til 2012.
Samninganefnd SFR hvetur ríkisvaldið til að taka nú afgerandi forystu í gerð kjarasamninga. Á almennum markaði hafa launþegar fylgst með þrætum aðila og ótrúlegum tilburðum við að binda kjarasamningsgerð við heimtufrekju atvinnurekenda. Slíku ofbeldi hafnar SFR og væntir þess að ríkisstjórn Íslands stígi ákveðið fram í samningagerðinni,“ segir í tilkynningu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 29. janúar 2011, Innlent Vilja kjarasamning til 18-24 mánaða
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent SFR vill krónutöluhækkun
- Þriðjudagur, 28. júní 2011, Innlent Styðja eigin samninganefndir
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Kjaraviðræðu verði vísað til sáttasemjara
- Þriðjudagur, 17. maí 2011, Innlent Reynt að ljúka samningum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































