Glitfaxi hefur aldrei fundist

Glitfaxi steyptist í sjóinn í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli fyrir 60 …
Glitfaxi steyptist í sjóinn í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli fyrir 60 árum, 31. janúar 1951. Snorri Snorrason/snorrason.is

Fyrir réttum sextíu árum fórst flugvélin Glitfaxi með tuttugu manns. Vélin var í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli þegar hún steyptist í sjóinn. Hún var að koma frá Vestmannaeyjum.

Á miðri leið bárust flugmönnum Glitfaxa fregnir af því úr flugturni Reykjavíkurflugvallar að veðrið væri orðið „mjög vafasamt“ og að aðstæður til lendingar færu versnandi.

Eftir misheppnaða lendingartilraun flaug Glitfaxi út á Faxaflóa og undirbjó þá næstu. Skyndilega hætti Glitfaxi að svara köllum flugstjórnar og ljóst var að hann hafði hrapað.

Í umfjöllun um hvarf Glitfaxa í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að slysið skildi eftir sig stórt skarð. Áhöfn og farþegar létu eftir sig alls fjörutíu og átta börn og tvö í móðurkviði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert