Kannbisræktun stöðvuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar.

Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Að sögn lögreglu var karlmaður um þrítugt yfirheyrður og játaði hann aðild sína að málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert