Ætlar Ögmundur að sitja áfr
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gerir á bloggvef sínum að umræðuefni þau ummæli Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, í viðtali í Morgunblaðinu í gær að hluti ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á fundi Samfylkingarinnar á laugardag bæri hvorki vott um sanngirni né góða dómgreind.
„Á einhverjum tíma – í einhverju siðuðu samfélagi þar sem orð hefðu merkingu – yrði ráðherrann inntur nánar eftir því hvað hann hygðist fyrir í framhaldi af öðrum eins ummælum. Ætlaði hann að starfa áfram undir verkstjórn þess sama forsætisráðherra hvers dómgreindarbresti hann hefði lýst? Ef svarið væri já – ætlaði hann þá að draga orð sín til baka? Ef svarið við síðari spurningunni væri nei – hvernig ætlaði ráðherrann þá að vera maður orða sinna?" spyr Ólína.
Hún segir síðan, að í hrunsamfélagi, þar sem orð hafi skerta merkingu, þar sé þeim ekki fylgt eftir. „Þau eru bara látin vaða eins og púðurskot út í loftið, án ábyrgðar."
Ólína gagnrýnir einnig Lilju Mósesdóttur, þingmann VG, fyrir viðbrögð hennar við ummælum Jóhönnu og segir Lilju veitast að Jóhönnu með tilhæfulausum ásökunum, sem jafna megi við hreint níð.
„Af Jóhönnu Sigurðardóttur mætti Lilja Mósesdóttir margt læra, ef hún hefði snefil af því hugarfari sem þarf til þess að virða og meta framlag þeirra sem eldri eru og reyndari. En það þarf visku til þess að meta framlag þeirra sem gengið hafa grýttar slóðir og rutt brautir. Það þarf visku til þess að virða annað fólk og skilja verðmæti mannlegrar reynslu. Þá visku virðist þingmaðurinn ekki hafa til að bera, ef marka má ummæli hennar. Það er synd, því Lilja er að mörgu leyti vel gefin kona, þó sérlunduð sé og sjálfhverf," segir Ólína.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson Ætlar Ögmundur að sitja áfram undir verkstjórn dómgreindarleysis? -
Guðjón Sigþór Jensson Er sætaskipun á Alþingi til að auka sundurlyndi? -
Sigurður Sveinsson Fílabeinsturn. -
Jón Baldur L'Orange Heimilislífið á ESB ríkisstjórnarbænum -
Torfi Kristján Stefánsson Hin hvatvísa Ólína! -
Tómas Ibsen Halldórsson Hún er skrítin tík, þessi pólitík !!! -
Gunnar Heiðarsson Stór undarlegt fólk innan Samfylkingar ! -
Jón Ríkharðsson Rétt hjá Ólínu. -
Viggó Jörgensson Dómgreindarlaus Jóhanna þekkir ekki sanngirni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent „Sem betur fer er málfrelsi á Íslandi“
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Skortur á sanngirni og dómgreind
- Þriðjudagur, 8. mars 2011, Innlent Nóg komið af vitleysunni
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Hvað er að gerast hér?
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Segir „umræðufasisma“ á Íslandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































