SA þarf að fara að ákveða sig
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir Samtök atvinnulífsins verða að fara að gera upp við sig hvaða leið þau vilji fara í kjaramálunum. Þau hafi sett allt í uppnám með því að tengja gerð kjarasamninga við sjávarútvegsmálin.
Stjórn SA ályktaði fyrr í dag um mikilvægi þess að samkomulag náist um atvinnuleið út úr kreppunni með gerð kjarasamninga til þriggja ára.
24. janúar slitnaði upp úr viðræðum samninganefnda ASÍ og SA vegna þess skilyrðis SA að niðurstaða fáist í sjávarútvegsmálum áður en gengið verði frá kjarasamningum. Launþegasamtökin hafa hins vegar lagt áherslu á að gerðir verði kjarasamningar til skammst tíma.
Gylfi segir það merkilegt að forysta SA álykti um mikilvægi þess að gera þriggja ára kjarasamning en neiti svo að semja við launþegahreyfinguna nema í þeim tilgangi að nota efni samkomulagsins til að þvinga ríkisstjórnina í sjávarútvegsmálum.
Gylfi segir SA verða að fara að ákveða sig hvora leiðina samtökin vilja fara. „Þeir settu þetta mál allt í uppnám með því að tengja þetta svona hrátt saman og ætla síðan að nota efni kjarasamnings til að þvinga ríkisstjórnina í fiskveiðimálunum. Þeir eru ekki að fara neina atvinnuleið. Þeir eru að setja allt í uppnám,“ segir Gylfi.
Samninganefnd ASÍ ætlar að funda á morgun og fara yfir stöðuna en kjarasamningar hafa verið lausir í tvo mánuði.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. janúar 2011, Innlent Viðræðum um samræmda launastefnu hætt
- Laugardagur, 16. apríl 2011, Innlent Tala um gíslatöku LÍÚ
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Segja afstöðu SA lögbrot
- Fimmtudagur, 10. febrúar 2011, Innlent Rætt um kjaramál
- Miðvikudagur, 13. apríl 2011, Innlent Vilja ná samningum á föstudag
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































