Fréttaskýring: Sprenging í friðsælu hverfi
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Árásin beindist að mestu gegn 64 ára gömlum manni og rúmlega þrítugri dóttur hans, nýbakaðri móður, sem reyndi ásamt móður sinni að koma föður sínum til hjálpar. Afleiðingar árásarinnar urðu m.a. þær að dóttir hans missti mjólkina en sonur hennar var þá sex vikna gamall. Öll glíma þau við afleiðingar árásarinnar, líkamlegar eða andlegar.
Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson eru ákærðir fyrir að hafa 3. maí 2010 veist að manninum fyrir utan heimili hans, ógnað með hnífi, kýlt hann svo hann féll í jörðina og sparkað ítrekað í höfuð hans og búk. Þeir hafi einnig ráðist að dóttur hans, þegar hún reyndi að koma föður sínum til hjálpar, sparkað í líkama hennar og haldið við svo búið áfram að sparka í föður hennar. Þegar eiginkona hans bograði yfir honum til að verja hann spörkum, hafi þeir sparkað í hana.
Afleiðingar af einu höggi?
Mennirnir neita báðir sök. Axel lýsti atburðum þannig að hann hefði ætlað að innheimta 30.000 króna skuld hjá sonarsyni mannsins sem þá bjó hjá afa sínum og ömmu. Sonarsonurinn var ekki heima og sagði Axel að eftir orðaskipti við manninn, afa skuldarans, hefði hann ætlað að ganga í burtu. Maðurinn hefði þá slegið hann í hnakkann og svo í andlit. Axel sagðist þá hafa slegið manninn einu sinni í andlitið, Viktor hefði ýtt manninn niður í jörðina og hann hefði síðan sparkað í fætur hans.Fram kemur í ákærunni að afleiðingar árásarinnar voru þær að maðurinn hlaut nefbrot, rifbeinsbrot, mar og bólgu á enni, bólgu á vinstra gagnauga, glóðaraugu, rispur kringum hægra augað, skurði undir vinstra auga, tvo skurði á nefi, þrjú minni sár á andliti vinstra megin, bólgu yfir kinnbeinum, tognun í hálsi og hálshrygg og mar á brjóstkassa. Hvorki Axel né Viktor kunnu nokkrar skýringar á áverkunum.
Greinilegt var af vitnisburði fólksins að árásin fékk mjög á þau. Maðurinn greindi svo frá að hann og dóttir hans hefðu verið nýbúin að setja sex vikna gamlan son hennar inn í bíl þegar mennirnir tveir stóðu allt í einu fyrir aftan hann. Þeir spurðu um sonarson hans en fengu þau svör að hann væri ekki heima. Þeir hefðu talað um að hann skuldaði þeim pening en maðurinn svaraði að það kæmi honum ekki við. „Þá byrjuðu þeir að hóta,“ sagði hann. Hóta því að brjótast inn þegar enginn væri heima. „Ég var ekki sáttur við það en svo sé ég að hann [Axel, innsk.blm] er að taka upp hníf. Þá ýti ég við honum,“ sagði hann. Svo vissi hann ekki af sér fyrr en hann lá á fjórum fótum á götunni. Eina skýringin gæti verið, sagði hann, að hann hefði hlotið þungt högg en hann man ekki eftir því. Hann leit til hliðar og sá að þeir voru að sparka í dóttur hans. „Ég rís upp, reyni að hjálpa,“ sagði hann en þá var sparkað í hann aftur.
Unnu alltaf tveir saman
Maðurinn sagðist alls ekki vera búinn að jafna sig, hvorki líkamlega né andlega. „Ég vakna upp um miðjar nætur. Áfallið við að geta ekki varið sína eigin fjölskyldu er skelfilegt. Heima hjá sér!“ sagði hann. Auk verkja fyndi hann til svima sem læknir hefði rakið til árásarinnar.Dóttir mannsins sá upphaf árásarinnar. Hún sagði að annar mannanna hefði slegið föður sinn en hinn hefði hoppað upp á bakið á honum og þannig hefðu þeir náð að fella föður hennar, en hann er bæði stór og stæðilegur. Síðan hefðu þeir báðir sparkað í hann. Hún reyndi að koma honum til hjálpar en þeir sneru sér þá að henni, tóku hvor í sinn handlegg hennar og keyrðu hana aftur á bak um leið og þeir slógu hana í andlitið, sitt höggið hvor. Hún féll við og litlu munaði að höfuð hennar færi á brunahana. Þá var sparkað í hana, m.a. fékk hún þung högg í kviðinn. Þegar hún var úr leik, en faðir hennar var að rísa upp, hefðu þeir aftur snúið sér að honum. „Þetta virtist vera einhver taktík hjá þeim,“ sagði hún, þ.e. að ráðast alltaf báðir í einu á einhvern einn. Hún hefði séð þegar þeir spörkuðu „á fullu“ í föður hennar.
Afleiðingar árásarinnar á dótturina voru líkamlegar, hún var marin, með mikla kviðverki, átti erfitt með að sinna syni sínum vegna verkja og hætti að mjólka. Hún sagðist líka finna fyrir óöryggi og færi ekki út ein eftir að dimmt væri orðið.
Eiginkona mannsins sagði að upphaf árásarinnar hefði verið skyndilegt, eins og það hefði orðið sprenging. Hún hefði ýmist reynt að hjálpa dóttur sinni, sem hefði kútvelst undan atlögu mannanna, eða eiginmanni en lítið getað gert. Loks hefði hún bograð yfir honum til að verja höfuðið spörkum en þá fengið þungt högg á hnéð þannig að hún gat ekki gengið lengi á eftir. Um leið hefði annar maðurinn dregið upp hníf og reitt hann á loft. Hann hefði eflaust stungið þau hefðu nágrannar ekki komið á vettvang. Konan sagði sálartetrið rústir einar eftir árásina. „Það er búið að eyðileggja þetta öryggi sem maður hafði í þessu friðsæla hverfi,“ sagði hún.
Forhertur og vel þekktur
Axel Karl Gíslason er ekki eingöngu ákærður fyrir árásina í Reykjanesbæ heldur m.a. einnig fyrir að hafa við annað tækifæri hótað lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti og ýmsum misþyrmingum.Þegar atvikið átti sér stað voru tveir lögreglumenn að búa sig undir að handtaka Axel vegna tilkynningar um slagsmál að kvöldi 29. ágúst 2009 og um að hann hefði hótað öðrum manni með hnífi. Í þann mund sem lögreglumennirnir ætluðu að setja Axel í handjárn kom eldri bróðir hans hlaupandi með kreppta hnefa, sló þá báða samstundis og ruddi þeim um koll, skv. framburði lögreglumannanna fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þeir bræður voru snúnir niður en voru æstir og hótuðu lögreglumönnunum og fjölskyldum þeirra lífláti og meiðingum og héldu þær hótanir áfram eftir að liðsauki barst á staðinn. Þrír af lögreglumönnunum sem báru vitni lýstu því yfir að þeir hefðu tekið hótanirnar alvarlega í ljósi þess hverja um var að ræða. „Þarna voru tveir forhertir og vel þekktir glæpamenn að hóta okkur lífláti,“ sagði einn þeirra. Minntist einn lögreglumaðurinn þess að hafa handtekið hann þegar hann var 15 eða 16 ára. Sú handtaka var ekki án fyrirhafnar.
Sitja á Litla-Hrauni
Mennirnir sem eru ákærðir fyrir árásina, Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson, afplána nú dóm fyrir þátt sinn í Barðastrandarráninu svokallaða. Það mál snerist um innbrot á heimili eldri manns, úrsmiðs, en hann kom óvænt heim á meðan á innbrotinu stóð.
Viktor var sakfelldur fyrir að hafa ráðist að úrsmiðnum, barið hann og bundið meðan samverkamaður hans lét greipar sópa um húsið. Axel var dæmdur fyrir að hafa skipulagt innbrotið. Axel var dæmdur í 2½ árs fangelsi en Viktor í þriggja ára fangelsi fyrir innbrotið, ránið og fleiri afbrot.
Þeir eru 21 árs, fæddir 1989. Axel á langan brotaferil að baki.





































