Gæti þurft að kanna umboð formanns
Stjórn Heimdallar segir að boða þurfi til landsfundar Sjálfstæðisflokksins ef þingmenn flokksins samþykkja Icesave. mbl.is/Brynjar Gauti
Stjórn Heimdallar hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að ef formaður og þingmenn Sjálfstæðisflokksins taka þátt í að samþykkja kröfur Breta og Hollendinga vegna Icesave, sé nauðsynlegt að halda landsfund sem fyrst til að kanna umboð formannsins.
Stjórn Heimdallar sendi ályktunina frá sér í kvöld í kjölfar afstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins vegna Icesave-samkomulagsins. Yfirskrift ályktunarinnar er: „Hugsanlegt að kanna þurfi umboð formanns“„Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af þeirri afstöðu sem felst í áliti fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd hvað varðar Icesave samninginn. Þeir hafa lagt til að samningurinn verði samþykktur og Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, hefur tekið undir þá skoðun,“ segir í ályktun Heimdallar.
„Ljóst er að sjálfstæðismenn hafa hingað til tekið harða afstöðu gegn hvers konar uppgjöf gegn kröfum Breta og Hollendinga. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktaði á þá leið 2010 að hafna bæri löglausum kröfum þeirra.
Í ljósi þeirrar skýru afstöðu sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók gegn Icesave kröfunum, er ljóst að ef formaður og þingmenn Sjálfstæðisflokksins taka þátt í að samþykkja þær kröfur er nauðsynlegt að halda landsfund sem fyrst til að kanna umboð formannsins.
Stjórn Heimdallar vonar að sjálfstæðismenn standi saman gegn löglausum kröfum Breta og Hollendinga, nú sem áður,“ segir í ályktun Heimdallar.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Gæti þurft að kanna umboð formanns/ekki flana að hlutunum!!!það er ... -
Ólafur Ingi Hrólfsson Landsfundarsamþykktin -
Guðrún María Óskarsdóttir. Ungir Sjálfstæðismenn vakna til dáða. -
Jóhann Elíasson ÞARF EKKI AÐ SETJA FORMANNINN Í LYFJAPRÓF????????
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Fylgdu ekki Bjarna
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Ólga vegna Icesave
- Fimmtudagur, 3. febrúar 2011, Innlent Afstaða þingflokksins óskiljanleg
- Laugardagur, 5. febrúar 2011, Innlent Vilja þjóðaratkvæði
- Miðvikudagur, 2. febrúar 2011, Innlent SUS gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokks
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































