Meiriháttar pólitísk mistök

Styrmir Gunnarsson. stækka

Styrmir Gunnarsson. mbl.is/Ragnar Axelsson

Þjóðin á að hafa síðasta orðið um Icesave. Þetta segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. „Það eru meiriháttar pólitísk mistök hjá meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins og forystu þess flokks að gera sér ekki grein fyrir þessu.“

„Þess vegna er nú að rísa bylgja andstöðu innan flokksins vegna þessarar afstöðu meirihluta þingflokksins,“ skrifar Styrmir í grein á vefsíðu Evrópuvaktarinnar. Þingflokkurinn geti enn bætt fyrir þessi mistök með því að flytja tillögu á Alþingi um að þjóðin taki þessa ákvörðun sjálf. „Á hvorn veg sem sú ákvörðun færi yrði ekki um hana deilt eftir það,“ segir í grein Styrmis.

Leggja á samninginn undir þjóðaratkvæði

Styrmir segir að stundum séu pólitískar línur mjög skýrar. „Það eru þær, þegar hér er komið sögu í Icesave-málinu svonefnda. Það mál var komið til þjóðarinnar. Hún hafnaði með afgerandi hætti þeim ákvörðunum, sem meirihluti Alþingis hafði tekið í málinu. Þar með er auðvitað ljóst, að Alþingi getur ekki tekið nýja ákvörðun í sama máli. Alþingi verður að sýna þjóðarviljanum þá virðingu að leggja nýtt samkomulag um Icesave undir þjóðaratkvæði.

Í þessu ljósi er erfitt að skilja þá afstöðu, sem þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis hafa tekið til málsins ásamt formanni flokksins og vafalaust meirihluta þingflokksins. Hvers vegna leggja þessir þingmenn ekki til að nýr Icesave-samningur verði lagður undir þjóðaratkvæði eins og sjálfsagt er? Hvers vegna flytur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sem heild ekki slíka tillögu á þingi?

Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja styðja hið nýja Icesave-samkomulag eru að sjálfsögðu frjálsir af því. Þeir geta fylgt sannfæringu sinni eftir með því að berjast fyrir því í þjóðaratkvæðagreiðslu að það verði samþykkt. Svo eiga þeir það við flokkssystkini sín og stuðningsmenn, hvort þeir fá áframhaldandi traust til þess að sitja á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins en það er annað mál,“ segir í grein Styrmis.

Hann rifjar upp að í upphafi umræðna um Icesave-málið í kjölfar hrunsins voru margir á báðum áttum um það hvað gera skyldi. „Smátt og smátt kom í ljós, að Ísland hafði aldrei undirskrifað neina samninga, sem gerði það að verkum, að þjóðin hefði tekið á sig alþjóðlegar skuldbindingar um að skattgreiðendur á Íslandi tækju að sér að greiða skuldir einkafyrirtækis við fólk í öðrum löndum. Sterkasta lögfræðilega röksemdafærslan fyrir þeirri skoðun kemur fram í gagnmerkum kafla í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um þetta mál. Það lögfræðilega mat, sem þar kemur fram hefur hlotið stuðning víða um lönd,“ segir Styrmir.

Kjarni málsins sé sá, sem alþingismenn verði að horfast í augu við, „að þegar einu sinni er búið að vísa málinu til þjóðarinnar er það lýðræðisleg krafa almennings í þessu landi að hann fái að hafa síðasta orðið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Frábærar snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...