Þjóðin eigi síðasta orðið

Björn Bjarnason ásamt Bjarna Benediktssyni.
Björn Bjarnason ásamt Bjarna Benediktssyni. mbl.is/

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, kveðst vera undrandi á því að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, taki ekki undir það sjónarmið að hin nýju Icesave-lög verði borin undir þjóðina.

Björn segir að rökin fyrir því eigi ekkert skylt við það hvort fleiri eða færri þingmenn samþykki lögin.

„Meginrökin eru þau að málið er í höndum þingsins af því að þjóðin vísaði því þangað í atkvæðagreiðslu. Þingið á að fela þjóðinni að eiga síðasta orðið í málinu nema þingmenn vilji skilja það eftir sem opið sár,“ segir Björn á bloggsíðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert