Agnar fær góð meðmæli frá Gordon Ramsey

Íslenski matreiðslumaðurinn og veitingahúsaeigandinn Agnar Sverrisson ásamt samstarfsmanni sínum Xavier Rousset. stækka

Íslenski matreiðslumaðurinn og veitingahúsaeigandinn Agnar Sverrisson ásamt samstarfsmanni sínum Xavier Rousset.

mbl.is Eftir Jón Pétur Jónsson

Breski stjörnukokkurinn Gordon Ramsey segir að Íslendingurinn Agnar Sverrisson sé á meðal þriggja matreiðslumanna sem séu líklegir til afreka og vert sé að fylgjast með.

Ramsey segir þetta í viðtali við tímarit bandaríska flugfélagsins Delta, Delta Sky Magazine. Fyrirsögn greinarinnar er „3 Rock Star Chefs", eða „Þrjár matreiðslurokkstjörnur“.

Agnar, sem er eigandi veitingastaðarins Texture í London, segir í samtali við mbl.is að þetta sé mikill heiður.

„Hann [Ramsey] segir í öðru viðtali að Texture sé uppáhalds veitingastaðurinn sinn og hann hefur oft komið hingað. Hann er ekki mikið hér í London, en þegar hann er hérna þá kemur hann yfirleitt hingað til að borða,“ segir Agnar og bætir við að hann þekki Ramsey ekki neitt.

Agnar bendir á að það sé frábær auglýsing að fá meðmæli frá manni eins og Ramsey, sem sé stjarna í veitingahúsaheiminum. Að sögn Agnars hafa margir pantað borð á staðnum eftir að hafa lesið viðtalið. „Líka þegar hann sagði í desember, í öðru blaði, að Texture væri uppáhalds veitingastaðurinn sinn. Þá fengum við fullt af gestum strax,“ segir Agnar og bætir við að fólki hlusti greinilega á það sem Ramsey hafi að segja um veitingastaði og góðan mat.

„Hann veit alveg hvað góður og vondur matur er.“

Aðspurður segir hann reksturinn ganga vel og að í nógu sé að snúast. Sl. laugardag var Agnar gestur í matreiðsluþættinum Saturday Kitchen sem sýndur er í breska ríkissjónvarpinu (BBC One).

„Ég var í beinni útsendingu þar í um klukkustund, eða svo, og það eru yfir þrjár milljónir manna sem horfa á hann,“ segir hann og bætir við að allt hafi gengið vel þrátt fyrir örlítið stress.

Agnar segist hafa nýtt tækifærið til að auglýsa Ísland og íslenskar afurðir í þættinum. „Ég var með íslenskan þorsk, söl og ég veit ekki hvað og hvað. Við töluðum mikið um hákarl og þetta var voða gaman, og ég held að þetta hafi verið mjög góð kynning fyrir Ísland.“

Agnar opnaði Texture árið 2007 ásamt vínþjóninum Xavier Rousset. Staðurinn, sem sérhæfir sig í skandínavískri matargerð,  hlaut hina eftirsóttu stjörnu Michelin í fyrra, og er Agnar fyrsti íslenski matreiðslumaðurinn til að ná þessum áfanga. Hann segir að það hafi breytt mjög miklu fyrir staðinn sem hafi opnast fyrir nýjum hópi matgæðinga. Nú sé stefnan að næla sér í aðra stjörnu. „Það er alveg á hreinu,“ segir hann. 

Þeir Agnar og Rousset opnuðu nýjan stað í fjármálahverfinu í London sl. sumar, en staðurinn ber heitið 28 50 Wine Workshop & Kitchen. Þeir Agnar og Rousset skipta með sér verkum og sér Agnar alfarið um rekstur Texture á meðan Rousset stýrir nýja staðnum.

Að sögn Agnars er hugmyndafræði staðanna ólík. Nýi staðurinn sé vínbar með léttum réttum. „Það er búið að ganga vonum framar. Næsta skrefið er það að nú erum við að leita að nýju húsnæði fyrir þriðja staðinn,“ segir Agnar. 

Gordon Ramsey.

Gordon Ramsey.

PDF-skrá Viðtalið við Gordon Ramsey.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
 
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...