Flugmálastjórn í hagsmunagæslu fyrir Icelandair

Forstjóri Iceland Express segir að vinnubrögð Flugmálastjórnar Íslands hafi því miður verið með þeim hætti að það hún hafi unnið að hagsmunagæslu fyrir Icelandair. Í gær var birt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem segir að afgreiðsla Flugmálastjórnar á flugréttindum á Íslandi raski samkeppni í áætlunarflugi til og frá landinu.

Matthías Imsland segir í tilkynningu að það megi segja að starfsmenn stofnunarinnar hafi með vísvitandi hætti reynt að raska samkeppni í áætlunarflugi hérlendis.  Þá hafi þeir sent hugmyndir Iceland Express um framtíðarsýn félagsins til keppinautar okkar til umsagnar.

 Hann segir að það hafi skekkt samkeppnisstöðuna gríðarlega, hvernig Flugmálastjórn hafi staðið í hagsmunagæslu fyrir helsta keppinaut IE.  Það sé því fagnaðarefni að grípið skuli inn í með þessum hætti.  Það sé ekki eðlilegt að til þess að fá að stunda samkeppni á Íslandi þurfi að senda áformin til Icelandair til þess að þeir geti sagt Flugmálastjórn hvort þeir leggist gegn áformum IE eða ekki.

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem birt var í gær, segir að skilyrði nýlegrar ákvörðunar Flugmálastjórnar um leyfi til Astraeusar, sem er flugrekstraraðili Iceland Express, hefðu að óbreyttu komið í veg fyrir að félagið gæti boðið upp á áætlunarflug milli Keflavíkur og Winnipeg í Kanada næsta sumar.  

Hefur Samkeppniseftirlitið því beint bindandi fyrirmælum til Flugmálastjórnar um að breyta verklagi sínu við að veita flugréttindi með það að markmiði að auka samkeppni í flugi til og frá Íslandi.

Að sögn Samkeppniseftirlitsins batt Flugmálastjórn leyfi Iceland Express til flugs á sömu leið síðasta sumar sambærilegum skilyrðum, en samgönguráðuneytið greip þá inn í og heimilaði flugið án skilyrða.

Í tilkynningu frá Iceland Express segir að tildrög málsins séu þau að Iceland Express hyggist bjóða í sumar upp á áætlunarflug milli London og Winnipeg í Kanada með viðkomu í Keflavík. Þar sem Astraeus sé breskur flugrekandi hafi það félag leyfi til að fljúga til Kanada á grundvelli loftferðasamnings milli Kanada og ríkja Evrópusambandsins.  Sambærilegur loftferðasamningur hafi hins vegar ekki verið gerður milli Kanada og Íslands sem valdi því að Astraeus þurfi leyfi flugmálayfirvalda hér á landi til að fljúga þann hluta flugsins sem sé á milli Keflavíkur og Winnipeg.  Astraeus hafi sótt um leyfi til að fljúga umrætt áætlunarflug.  Ákvörðun Flugmálastjórnar um leyfið hafi hins vegar bundin verið því skilyrði að Iceland Express og Astraeus myndu afla sambærilegra flugréttinda fyrir íslenska flugrekendur í Kanada hjá þarlendum flugmálayfirvöldum. 

Þá segir að Flugmálastjórn hafi haldið því fram að þetta sé í samræmi við vinnureglur stofnunarinnar og hagsmuni íslenskra flugrekenda.  Iceland Express og Astraeus hafi talið að þetta skilyrði jafngildi neitun á því að fá að stunda umrætt flug.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
Toyota Yaris
Toyota yaris 2004 árg. Ekinn 114 þ., beinskiptur og skoðaður 2013. Mjög vel með ...
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...