Íslensk hönnun vekur athygli
Kragi frá Áróru Eiri Traustadóttur fatahönnuði. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr hefur vakið athygli á Hönnunarsýningunni Stockholm Furniture Fair og Stockholm Design Week sem stendur fram til 12. febrúar. Sýningin, sem er á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands, kynnir brot af því besta á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu.
Sendiráð Íslands í viðkomandi höfuðborgum eru bakhjarlar sýningarinnar og hafa aðstoðað við uppsetningu og kynningu á hverjum stað; í Dansk Design Center í Kaupmannahöfn vorið 2010, á heimssýningunni í Sjanghæ í Kína í september og í Peking í nóvember og nú í Stokkhólmi. Sendiráð Íslands þar í borg efnir ásamt Hönnunarmiðstöð á morgun til kynningarmóttöku fyrir fagaðila og blaðamenn innan ramma dagskrárinnar Design Boost í Hönnunarhúsi Stokkhólms.
Sýningin hefur að geyma verk um 20 hönnuða sem valdir eru með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu, „en nú sem aldrei fyrr er brýnt að vera sýnileg á alþjóða vettvangi og styrkja erlend menningar- og viðskiptatengsl,“ segir á vef utanríkisráðuneytisins.
Stockholm Furniture Fair kaupstefna er ætluð fagfólki; framleiðendum og hönnuðum, en leikmönnum gefst einnig tækifæri til þess að skoða það sem þar er til sýnis, því opið er fyrir almenning laugardaginn 12. febrúar nk. frá kl. 09:00-17:00.
Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands, utanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, Íslandsstofu og Hönnunarsjóðs Auroru.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. febrúar 2010, Innlent Kynna Ísland á 14 metra borða
- Föstudagur, 31. desember 2010, Innlent Andlát: Guðmundur Einarsson
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Miklir möguleikar í útflutningi hönnunar
- Föstudagur, 9. desember 2011, Innlent Sigraði í lýsingarhönnunarkeppni
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Barnaleg sýning
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































