Verðmunur minnkar
mbl.is
Allt að 10% verðmunur reyndist vera á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslununum sl. mánudag.
Matvörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði 12.881 krónur en dýrust í Nettó á 14.177 krónur. Verðmunurinn var 1.296 kr eða 10%. Aðeins 2% verðmunur var á matarkörfunni milli Bónus og Krónunar og innan við 1% verðmunur var á milli Kosts og Nettó.
Mestur verðmunur í könnuninni var á rauðum eplum sem voru dýrust á 359 kr./kg. í Nettó, en ódýrust á 195 kr./kg. í Kosti verðmunurinn er 164 kr./kg. eða 84%. Mikill verðmunur var einnig á rúðuúða/gluggapússi sem var dýrastur á 500 kr/l. í Bónus en ódýrastur í Krónunni á 316 kr/l. verðmunurinn er 184 kr/l. eða 58%. Uppþvottalögur frá Fairy var dýrastur á 714 kr/l. í Nettó en ódýrastur á 458 kr/l. í Bónus sem er 56% verðmunur. Hafrakexið frá Haust var dýrast á 1.240 kr./kg. í Kosti en ódýrast á 844 kr./kg. í Bónus sem er 47% verðmunur.
Enginn verðmunur var í könnuninni á forverðmerktri grófri lifrarkæfu frá Alí hún kostar 1.593 kr./kg. í öllum fjórum verslununum. Minnstur verðmunur var á kíló af Merrild kaffi sem var ódýrast í Kosti á 1.290 kr./kg. en dýrast í Nettó á 1.318 kr./kg. sem er 2% verðmunur. Gullauga kartöflur voru dýrastar á 112 kr./kg. í Krónunni og Nettó, en þær voru ódýrastar á 109 kr./kg. í Kosti sem er 3% verðmunur.
Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Faxafeni, Krónunni Granda, Nettó Breiðholti og Kosti Dalvegi.
|
|
Verðkönnun ASÍ |
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. desember 2011, Innlent Mikill verðmunur á jólamatnum
- Þriðjudagur, 3. maí 2011, Innlent Munaði rúmlega þúsund krónum
- Fimmtudagur, 11. febrúar 2010, Innlent 22% verðmunur á Bónusi og Kosti
- Fimmtudagur, 1. september 2011, Innlent Krónan ódýrust
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Allt að 25% verðmunur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































