Hagræðingu verður varla frestað
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir ljóst að gert hafi verið ráð fyrir niðurskurði í skólakerfinu á þessu ári og því komi vart til greina að fresta hagræðingum fram á næsta ár. Hins vegar sé einnig ljóst að ekki komi til greina að ganga þannig að skólunum að það komi niður á gæðum námsins eða velferð nemenda.
„Við erum að skoða þessi mál núna og þau ættu að skýrast á allra næstu dögum,“ segir Oddný um áhrif niðurskurðarins á starfsemi grunnskólanna í haust. „Við gerðum alltaf ráð fyrir því að þurfa að skerða kennslumagnið en ef það verður niðurstaðan að t.d. list- og verkgreinakennsla verður í hættu, þá að sjálfsögðu tökum við það til endurskoðunar. Það gerist ekki á okkar vakt að við höldum ekki uppi metnaðarfullu skólastarfi,“ segir hún.
Kjarkmiklar breytingar
Hugmyndir um sameiningu leikskóla og grunnskóla og fyrirhugaða hagræðingu í starfi grunnskólanna hafa vakið mikil viðbrögð foreldra, kennara og skólastjórnenda. Oddný segist skilja og deila þeim áhyggjum sem uppi hafa verið en ítrekar að endanlegt markmið menntaráðs sé að standa vörð um skólastarfið og gera hagkvæmar breytingar til framtíðar.„Ef við förum ekki í kjarkmiklar breytingar verðum við í þessari stöðu í mörg ár,“ sagði Oddný í gær og nefndi sem dæmi sameiningu skóla og samnýtingu skólahúsnæðis. Hún segir nauðsynlegt að breyta ytra skipulagi til að geta staðið vörð um skólastarfið því ljóst sé að næstu ár verði líka snúin.
Opinn fundur í næstu viku
Á fundi borgarráðs í gær lagði Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, fram bókun þar sem sagði m.a.: „Vinstri græn munu ekki samþykkja þær hugmyndir sem hér hafa verið lagðar fram – og telja þær ekki eiga að koma til umræðu fyrr en áðurnefndar stjórnkerfisbreytingar hafa komið til framkvæmdar.“Spurð um bókunina sagði Oddný að vinnunni væri ekki lokið, hugmyndirnar yrðu þróaðar áfram og endanlegar tillögur lagðar fram í lok mánaðarins.
Menntasvið Reykjavíkurborgar hefur boðað foreldra grunnskólabarna til opins fundar í Ráðhúsinu kl. 17.30 fimmtudaginn 17. febrúar næstkomandi.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Hagræðingu verður varla frestað/en þau eru ekki af baki dottinn,það ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent „Standa vörð um gæði kennslunnar“
- Föstudagur, 28. janúar 2011, Innlent Framlög skert um milljarð
- Laugardagur, 12. mars 2011, Innlent Óánægðir foreldrar í Breiðholti
- Föstudagur, 8. apríl 2011, Innlent Deildar meiningar um skóla og frístundir
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Gengu út þegar Oddný kom í ræðustól
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































