Telur ekki þörf á afsögn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Friðrik Tryggvason

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra þurfi ekki að segja af sér vegna dóms Hæstaréttar, sem ógilti ákvörðun umhverfisráðherrans. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu.

Jóhann kvaðst ekki hafa gert athugasemdir við ákvörðun Svandísar á sínum tíma. Hún sagðist ekki hafa haft tækifæri til að ræða við Svandísi eftir að þessi staða kom upp, en fljótt á litið telji hún ekki ástæðu fyrir Svandísi að segja af sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert