Sögðu fórnarlambið hafa hrasað
Þrjú vitni tengd Andra Vilhelm Guðmundssyni sem ákærður er fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á nýársmorgun sögðu fórnarlambið hafa hrasað og þannig slasast. Sögðu þeir Andra hvorki hafa átt upptökin né sparkað eða slegið fórnarlambið.
Hlé var gert á aðalmeðferð málsins fyrir hádegi en enn á eftir að leiða nokkur vitni fyrir dóminn auk þess að flytja málið. Óvíst er hvort það takist í dag þar sem vitni sem voru á vettvangi hafa ekki látið sjá sig. Einnig var upplýst um það í morgun að með fórnarlambinu voru menn í för umræddan nýársmorgun. Ekki var hins vegar gert ráð fyrir að þeir bæru vitni í málinu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Andra Vilhelms, fór fram á það að settur saksóknari málinu hefði upp á þessum mönnum í hádeginu þannig að hægt væri að taka af þeim skýrslu. Var fallist á það.
Meðal þeirra vitna sem komu fyrir dóminn í morgun var bróðir ákærða í málinu sem var með honum á nýársmorgun og tveir vinir hans. Það sem helst einkenndi framburð þeirra var að minni allra batnaði frá því þeir gáfu skýrslu hjá lögreglu 5. janúar sl. Munu þeir betur eftir atriðum sem þeir tjáðu sig ekki um hjá lögreglu. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari, innti þá alla skýringa. Sagði einn þeirra hafa hugsað mikið um þetta og atvik rifjast upp fyrir vikið. Símon Sigvaldason, dómari málsins, spurði þá hvort hann hefði rætt atburðinn við önnur vitni og reyndist það vera, en sagði maðurinn að það hefði ekki haft úrslitaáhrif. „Við höfum nefnt þetta einu sinni en svo hef ég verið að hugsa þetta mikið heima.“
Betra minni vitnanna er ekki síst athyglisvert því þau vitni sem komu fyrir dóminn en tengdust hvorki ákærða né brotaþola báru öll við að þau hefðu munað atburðinn betur í skýrslutöku hjá lögreglu. Engar skýringar fengust hins vegar á þessu.
Álitsgerð Veðurstofu Íslands lögð fram
Við upphaf þingshalds í dag lagði Vilhjálmur H. fram álitsgerð Veðurstofu Íslands um veðrið að morgni nýársdags. Einnig hefur hann spurt vitni út í hvernig aðstæður hafi verið, s.s. hvort hált var þar sem átökin áttu sér stað. Þau áttu sér stað í anddyrinu á hótel 1919 í Hafnarstræti, en þangað liggja tvær tröppur. Töldu vitni tengd ákærða að alla vega hefði verið blautt, og þá hugsanlega hált.
Einnig var tekin símaskýrsla af lækni sem annaðist fórnarlambið á nýársmorgun. Hann lýsti því að komið hefði verið með hann rænulítinn og áverkarnir lífshættulegir. Hann gat ekki sagt til um hvort mörg högg þyrfti til að valda slíkum áverkum, og allt eins gæti aðeins fallið hafa ollið þeim.
Hvað batahorfur áhrærir sagði læknirinn að þó svo maðurinn eigi eftir að geta gengið án þess að haltra verði tíminn að leiða í ljós hverjar afleiðingarnar verða. Ekki sé hægt að meta það fyrr en eftir alla vega ár. Heilamar sem hann varð fyrir er við talstöðvarnar og því getur það haft áhrif á tal og tjáningu. Auk þess geti komið upp persónuleikabreytingar og minnið verið slæmt.






































