Staðið verði við gefin loforð um raunverulegt samráð
Foreldrafélag og foreldraráð Klambra krefst þess að borgaryfirvöld í Reykjavík standi við gefin loforð og hafi raunverulegt samráð við foreldra áður en teknar verði ákvarðanir sem eigi eftir að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir börnin þeirra. Þá er gerræðislegum vinnubrögðum og sýndarmennsku mótmælt harðlega.
Þetta kemur fram í bréfi sem var sent til borgarstjóra, menntasviðs Reykjavíkurborgar og til starfshóps til greiningar tækifæra til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.
Það er svohljóðandi:
„Grínið búið!
Við foreldrar leikskólabarna á Klömbrum mótmælum harðlega þeim gerræðislegu vinnubrögðum og sýndarmennsku sem Reykjavíkurborg virðist enn á ný vera að reyna að viðhafa gagnvart leikskólanum.
Nú síðast í haust var stórslysi afstýrt þegar sameina átti Klambra við Hlíðaborg. Þá gekk Oddný Sturludóttir fram fyrir skjöldu, játaði mistökin og lofaði að betri vinnubrögð myndu verða viðhöfð í framtíðinni. En enn á ný er beitt fyrirslætti og virðist vera farið af stað í hroðvirknislegan niðurskurð sem mun koma beint niður á börnunum okkar og skaða til muna starfið í leikskólanum.
Við mótmælum harðlega að:Góða fólk!
- ... enn á eftir að sýna fjárhagslegan ávinning af aðgerðunum.
- ... sýndarmennska hafi verið viðhöfð í stað raunverulegs samráðs.
- ... afar óljóst sé hver faglegur ávinningurinn eigi að vera.
- ... forsendur sem lagðar hafa verið fram (háskólaritgerð Óskars J. Sandholt ) séu vægast sagt óljósar og beinlínis misvísandi og stangist á við rannsóknir sem gerðar hafa verið (ss doktorsritgerð prófessors Hauks Viggóssonar).
Stjórn foreldrafélagsins fer fram á að staðið verði við gefin loforð og að raunverulegt samráð verði haft við foreldra áður en teknar verða ákvarðanir sem eiga eftir að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir börnin okkar. Með vísun í svartan húmor borgarstjóra viljum við leita allra leiða til að ekki þurfi að sníða höfuðið af til að bjarga fætinum hans.
Við teljum skorta á skynsemi, ígrunduð rök og málefnalega umræðu í öllum undirbúningi þessa máls.
Stjórnun snýst um forgangsröðun og aldrei meir en nú á erfiðum tímum. Snúum bökum saman og setjum börnin í forgang.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. janúar 2011, Innlent Sættum okkur ekki við þetta
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Umboðsmaður barna varar við niðurskurði
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Gagnrýna skort á samráði
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Vilja að tekið verði tillit til afstöðu íbúa
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Innlent Biður um sjónvarpsfund
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































