Frjálsi byrjaður að reikna lán að nýju

Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur hafist handa við endurútreikning þeirra lána sem tveir dómar Hæstaréttar frá í gær ná til. Segir bankinn að búast megi við að það taki nokkrar vikur að ljúka þeirri vinnu.

Í tilkynningu frá bankanum segir, að niðurstaða beggja dómanna sé sú að ef lánsfjárhæðin sé tilgreind í íslenskri mynt og afborganir séu í íslenskum krónum þá teljist lánin vera í íslenskum krónum, jafnvel þó orðalag samninganna að öðru leyti beri annað með sér.
 
Varðandi úrlausn um vexti í málunum hafi Hæstiréttur vísað til fordæmis réttarins frá 16. september sl. þar sem lagt var til grundvallar að reikna bæri lánin miðað við óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands frá upphafsdegi.
 
„Niðurstaða Hæstaréttar er mun víðtækari en lög sem sett voru á Alþingi í desember sl., en samkvæmt þeim var einungis skylt að endurreikna gengistryggð vaxtabótahæf íbúðalán til einstaklinga. Niðurstaða Hæstaréttar tekur hins vegar til allra „gengistryggðra“ lána bankans óháð því hver lántakandinn var eða tilgangur lántökunnar," segir í tilkynningu frá Frjálsa fjárfestingarbankanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert