„Standa vörð um gæði kennslunnar“
„Við ætlum að standa vörð um gæði kennslunnar [...] og bæta í varðandi gæslu og forföll,“ segir Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, en menntasvið borgarinnar hefur ákveðið að draga til baka kennsluskerðingu í grunnskólunum. Þá verður allt að 200 milljóna króna aukafjárveitingu varið til skólastarfs á haustönn 2011.
Aðspurð segist Oddný ekki útiloka að útvar Reykvíkinga verði hækkað til að koma á móts við þessar aðgerðir.
„Það kemur til greina. Einhvernvegin verðum við að koma til móts við þessar auknu fjárheimildir. Sanngjarnasta leiðin að mínu mati er að hækka útsvarið og dreifa byrðunum jafnt á alla, eða í rauninni að dreifa þeim á sem réttlátastan hátt,“ segir Oddný í samtali við mbl.is.
„Árvekni foreldra skipti sköpum. Foreldrar eiga hlutdeild í skólastarfinu með okkur. Þeir eru bandamenn okkar í þessu og við höfum auðvitað deilt þessum áhyggjum með foreldrum þegar við sáum hvernig staðan var,“ segir Oddný.
Gengið mjög hart í hagræðingu sl. ár
„Þegar við samþykktum fjárhagsáætlun þá vorum við alltaf með þennan varnagla að líta til viðræðna, sem ráðherra mennta- og menningarmála og sveitarfélögin hafa átt um skeið, um tímabundnar breytingar á lögum til að gera sveitarfélög betur í stakk búin til að halda uppi metnaðarfullu skólastarfi,“ segir hún.
„Við vorum alltaf þess fullkomlega meðvituð að við þyrftum að skoða stöðuna skólanna í Reykjavík mjög vel, núna í upphafi árs. Og við höfum gert það og allir hafa verið mjög vel upplýstir,“ segir Oddný og bætir við að nú sé ljóst að menn muni ekki ná saman í þessum viðræðum.
Hún bendir á að staðan, t.d. varðandi gæslu og forföll sé algjörlega óviðunandi. Þetta sé uppsafnaður vandi vegna hagræðingar síðustu ára. Oddný segir að það hafi verið gengið mjög hart fram í hagræðingu, t.d. á forföllum og gæslu, undanfarin ár, eða alveg frá bankahruni.
„Við tókum þá ákvörðun að endurskoða hug okkar, eða í rauninni að vera samkvæm sjálf okkur í fjárhagsáætluninni. Við tókum alltaf fram að það væri óvissa í kortunum. Við ætlum að standa vörð um gæði kennslunnar, sérstaklega list- og verkgreinakennslu sem okkur þykir sérstaklega vænt um, og bæta í varðandi gæslu og forföll,“ segir Oddný. Aðspurð segir hún að þetta sé allt að 200 milljónir kr.Allt að 200 milljóna króna aukafjárveitingu verður varið til skólastarfs á haustönn 2011. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar mun leggja fram tillögu þessa efnis í borgarráði næstkomandi fimmtudag.
Hægt verði að bjóða öllum börnum leikskóladvöl næsta haust
Þá bendir Oddný á að börn sem munu hefja leikskólagöngu næsta haust séu 400 fleiri heldur en þau börn sem fara í grunnskóla. Oddný telur mögulegt að „við getum boðið öllum þessum 400 börnum, sem eru umfram plássin okkar, leikskóladvöl næsta haust án þess að taka einu einustu skóflustungu. Og þar með erum við auðvitað að spara í framkvæmdakostnaði sem hleypur á annan milljarð króna.“
Hún segir ljóst að það sé nauðsynlegt að hagræða á mennta- og leikskólasviði. Það sé alveg á hreinu. Menn verði að fara í mjög kjarkmiklar breytingar á umhverfi skóla og frístunda í borginni, vilji menn ekki standa í sömu sporum að ári liðnu.
|
|
Fréttatilkynning frá Reykjavíkurborg |






































