Lilja andvíg Icesave-samningi
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á Alþingi í dag. mbl.is/Ómar
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn frumvarpi um að fjármálaráðherra fái heimild til að staðfesta nýjan Icesave-samning.
Vísaði Lilja m.a. til þess að samningurinn setti mikinn þrýsting á velferðarkerfið.
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi einnig atkvæði gegn samningnum. Sagði hann m.a. að þótt líkur á að allt fari á versta veg séu litlar myndi hann aldrei stíga upp í flugvél með barnabarnið sitt ef 3% líkur væru á að vélin hrapaði. Sagðist Pétur engin rök hafa séð um að Íslendingar eigi að greiða þessa kröfu Breta og Hollendinga.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði nei, nei, nei og sagðist ekki hafa sannfæringu fyrir því að samningurinn væri hagstæður Íslandi. Birgir Ármannsson, þingmaður flokksins, sagði það sitt mat, að hagsmunum Íslands væri betur borgið með því að fella samninginn.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði að Icesave-deilan hefði hvílt eins og mara á þjóðinni frá hruni. Íslensk stjórnvöld hefðu fengið það í fangið til úrlausnar og að endurreisa íslenskt þjóðfélag úr molum. Nú væri þjóðin með samning sem þjóðarbúið réði við.
„Við kjósum vandann ekki frá okkur heldur leysum hann að hætti siðaðra þjóða," sagði hún.
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagðist óska þess að þjóðin hefði borið gæfu til að samþykkja Icesave-samninginn í júlí 2009.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sat hjá í atkvæðagreiðslunni. Birkir Jón Jónsson, þingmaður flokksins, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og sagði, að niðurstaðan í atkvæðagreiðslum um tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu undirstrikaði að gjá væri milli þings og þjóðar í málinu.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, lýsti vonbrigðum með afstöðu Sjálfstæðisflokks í málinu og sagði að búið væri að gera hagsmuni landsins að verslunarvöru.
Bloggað um fréttina
-
Örn Gunnlaugsson Að bera gæfu til að hengja sig. -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ekki gaman að tala illa um Mörð -
Björn Birgisson Aumkunarverð hjáseta í stórmáli
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 16. febrúar 2011, Innlent Bjarni samþykkti þjóðaratkvæðagreiðslu
- Miðvikudagur, 13. apríl 2011, Innlent Vantrauststillaga felld
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent Hvetur Lilju til að samþykkja fjárlögin
- Sunnudagur, 23. janúar 2011, Innlent Styður Icesave að óbreyttu
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Spáir flóði vantraustsyfirlýsinga
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































