Þjóðarhag teflt í tvísýnu verði Icesave hafnað

Frá Alþingi í dag. stækka

Frá Alþingi í dag. mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í upphafi atkvæðagreiðslu á Alþingi um Icesave-frumvarpið, þeir sem hafni samningnum, sem liggur fyrir, tefli þjóðarhag í mikla tvísýnu. Tímabært sé að leiða þetta hörmulega mál til lykta.

Sagði Jóhanna að ætlað væri, að reikningurinn sem kynni að falla á Íslenska ríkið fari málið fyrir dómstóla og tapist, gæti numið 11-1200 milljörðum króna auk vaxta en á móti kæmu eignir í búi Landsbankans.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að Ísland væri fyrirmynd þjóða í því, að hafa ekki tekið skuldir bankakerfisins og gert þær að opinberum skuldum. Sagðist hann mæla með því að ágreiningunum yrði lokið með því að styðja Icesave-samninginn.

„Einkaskuldir  á ekki að gera að opinberum skuldum," sagði Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði ummæli forsætisráðherra sýna, að stjórnvöld hefðu ekkert lært á síðustu tveimur árum. Jóhanna hefði sagt, að verði ekki fallist á Icesave-kröfurnar gæti málið farið fyrir dómstóla og tapast með skelfilegum afleiðingum.  Það tap væri samt miklu minna en það sem hefði verið augljóst af síðasta samningi. Versta hugsanlega niðurstaðan nú sé því miklu skárri en sú sem ríkisstjórnin hefði verið tilbúin til að fallast á áður og það segði allt sem segja þurfi um þetta mál, sagði Sigmundur Davíð. 

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, sagði að það hefði verið mikil mistök að hleypa fyrri Icesave-samningunum í gegnum þingið. Margir áhættuþættir væru enn inni í nýja samningnum og það sé fullkomlega eðlilegt að þessu máli verði lokið með þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist ekki geta stutt samningana því ekki væri sanngjarnt að 300 þúsund manna þjóð bæri ein áhættuna af málinu.

Unnur Brá Konráðsdóttir,  sagði að mikil óvissa fælist í því að segja nei og einnig í því að segja já við þessum samningi. Hún sagðist vera fylgjandi því að málið fari fyrir þjóðina vegna forsögu málsins.  

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði að Íslendingum hefði tekist að nýta gjörbreytta stöðu með því að ganga sameinaðir til nýrra samninga sem væru miklu betri en fyrri samningar.  Jafnvel ný þjóðaratkvæðagreiðsla gæti ekki breytt stöðunni til betra horfs og því liggi blákaldir hagsmunir Íslendinga í því að segja já og taka við samningnum. 

„Í samningnum felst engin þvingun," sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Í honum felst þrá til að koma undan sænginni."

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði að sér þætti þetta ekki vera gleðistund.  En ekki væri saman að jafna því sem væri á borðinu nú og í árslok 2009. Ekki væri hægt að fagna niðurstöðunni en niðurstaða væri hún og menn yrðu að horfast í augu við hana.

Nokkrir berja bumbur utan við Alþingi.

Nokkrir berja bumbur utan við Alþingi. mbl.is/Ómar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið. Ef ósýnilegt blóð e...
Tækifæri
Toppurinn í kaffivélum í dag. Þitt eigið sælkera-kaffihús hvar sem er. Lífrænt ...
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG ALVÖRU MOLTUGERÐ
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþr...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....