Erfitt fyrir börn að kaupa sígarettur í Hafnarfirði
Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar lét kanna í byrjun mánaðarins hvort unglingar gætu keypt sígarettur á sölustöðum tóbaks í bæjarfélaginu. Niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að í tæpum 10% tilfella gátu unglingar keypt sígarettur.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að aldrei hafi jafn fáir sölustaðir selt unglingum tóbak í
Hafnarfirði frá því að núverandi tóbaksvarnarlög hafi verið sett árið 2002. Það sé erfiðara en nokkru sinni fyrr fyrir börn að kaupa sígarettur í Hafnarfirði.
Fram kemur að tveir unglingar úr 10. bekk hafi farið á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu þeir að kaupa sígarettur. Þá segir að tveir staðir af 21 hafi selt unglingunum tóbak. Tekið er fram að ekki hafi verið farið inn á staði sem séu með vínveitingaleyfi og selji tóbak.
Aukið aðhald með fleiri könnunum
Þá segir að frekari upplýsingar úr könnuninni verði sendar Heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðisins þar sem unnið verði úr þeim eins og lög geri ráð fyrir.
Forvarnarfulltrúi mun jafnframt senda sölustöðunum sem seldu börnunum tóbak ábending. Búast megi við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu eins og kveði á um í lögum um tóbaksvarnir.
„Síðustu misseri hafa söluaðilar sett sér stöðugt skýrari reglur sem tryggja að aldurstakmörk séu virt. Hafnarfjarðarbær hefur aukið tíðni kannana og veitt sölustöðum stöðugt aðhald. Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hefur gert sérstakt samkomulag við forvarnafulltrúann sem miðar að því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna,“ segir í tilkynningunni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 20. október 2010, Innlent Unglingar fengu að kaupa sígarettur
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Unglingar gátu keypt tóbak í 6 búðum
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Sjö seldu unglingum tóbak
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Innlent Fjórir af 19 seldu börnum tóbak
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent 32% unglinga selt tóbak
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































