Úrskurðarnefnd virðir ekki lög
Samtök atvinnulífsins telja að úrskurðarnefnd sem starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir virði ekki lög þar sem nefndin hafi aðeins í eitt skipti af 20 úrskurðað áður en lögbundinn frestur rann út.
Samtök atvinnulífsins hafa kannað hversu langan tíma það tekur úrskurðarnefnd sem starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir að kveða upp úrskurði í þeim málum sem þangað er beint. Þau mál sem nefndin fjallar um tengjast meðal annars starfsleyfum fyrirtækja og ýmsum þáttum sem umrædd lög taka til. Aðeins í eitt skipti af 20 hefur úrskurðarnefndin kveðið upp úrskurð innan lögbundinna tímamarka en að meðaltali tók það nefndina 40 vikur að kveða upp úrskurð sinn eða sem nemur tíföldum lögbundnum fresti (4 vikur) í hefðbundnum málum.
Í viðameiri málum er lögbundinn hámarksfrestur 8 vikur en sá úrskurður sem næstskemmstan tíma tók var kveðinn upp 9 vikum frá kæru. Úrskurðir í 7 málum voru kveðnir upp eftir 3-6 mánuði, í 5 tilvikum eftir 6-9 mánuði, í þremur málum eftir 9-12 mánuði, í einu eftir 16 mánuði, í öðru eftir 27 mánuði og í enn einu eftir 39 mánuði.
„Það er atvinnulífinu mjög mikilvægt að sá tími sem tekur að fá úrskurði stjórnsýslunnar í einstökum málum sé eins skammur og unnt er. Í því tilviki sem hér er rakið er úrskurðartíminn allt of langur og alveg ljóst að nefndin virðir alls ekki ákvæði laga sem um hana gildir. Það er ljóst að þessi langi afgreiðslutími er verulega íþyngjandi fyrir alla þá sem sækja mál fyrir þessum aðilum. Nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða og tryggi að farið sé að lögum. Ástandið er óviðunandi,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Eru menn ekki að grínast? -
Guðrún María Óskarsdóttir. Góð og réttmæt ábending um lélega stjórnsýsluhætti.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. október 2011, Innlent Hundurinn Golíat fær að lifa lengur
- Miðvikudagur, 11. janúar 2012, Innlent Golíat verði aflífaður
- Þriðjudagur, 10. maí 2011, Innlent Aflífa á tík sem beit konu
- Föstudagur, 20. maí 2011, Innlent Kópavogur uppfyllir lagaskyldur
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Innlent Gúmmístæðan innan marka starfsleyfis
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































