Dómarar fá 101.000 kr. launahækkun
Eftir Ómar Friðriksson
Kjararáð hefur ákveðið að hæstaréttardómarar og dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur skuli fá sérstakt tímabundið álag á laun allt til 31. janúar árið 2013 vegna tímabundins álags á dómstólunum. Launahækkunin gildir frá og með 1. febrúar sl. og er ákvörðuð 20 einingar á mánuði. Hver eining er 1% af 126. launaflokki kjararáðs, sem er 5.058 kr. í dag. Heildarhækkunin er því rúmlega 101 þúsund kr. á mánuði.
Dómarar máttu líkt og aðrir æðstu embættismenn, auk alþingisþingmanna og ráðherra, taka á sig launalækkun eftir lagasetningu Alþingis í lok árs 2008 og 2009. Þá var kjararáði falið að ákveða lækkun launa þeirra sem undir það heyra um 5-15%. Átti að gæta þess að föst laun fyrir dagvinnu yrðu ekki hærri en föst laun forsætisráðherra. Í úrskurði kjararáðs um launahækkun dómara er á það bent að skv. lögunum var kjararáði óheimilt til nóvemberloka 2010 að endurskoða til hækkunar úrskurði sína. Þessi lög bindi því ekki lengur hendur kjararáðs.
„Kjararáð telur rétt að bregðast við miklu álagi á dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt, sem rætur á að rekja til flókinna og umfangsmikilla mála vegna efnahagshrunsins, með því að taka ákvörðun um að greiða þeim sérstakt tímabundið álag á föst laun,“ segir í rökstuðningi kjararáðs.
2 fulltrúar segja hækkun ótímabæra vegna fjölgunar dómara
Tveir fulltrúar í ráðinu, Rannveig Sigurðardóttir og Svanhildur Kaaber, eru ósammála meirihlutanum og skila sératkvæði. Segja þær að með nýsamþykktum lögum sé dómurum við héraðsdóm tímabundið fjölgað um fimm frá 1. mars næstkomandi og dómurum við Hæstarétt fjölgað um þrjá. Auk þess sé fyrirhugað að ráða aðstoðarmenn og dómritara.Segja þær að þar sem stigið hafi verið ákveðið skref til að fjölga dómurum til að mæta auknu álagi sé ekki tímabært að taka ákvörðun um að greiða dómurum sérstakt tímabundið álag á föst laun þeirra.
Jónas Þór Guðmundsson skilar einnig sératkvæði, segist styðja ákvörðunina en vill að launahækkunin nái til allra dómara við héraðsdómstóla landsins og verði ótímabundin.
Bloggað um fréttina
-
Ægir Óskar Hallgrímsson Nú skil ég skattahækkanir?? -
Hjörleifur Harðarson í alvöru ... er álgaið ekkert meira á eintaklingum landsins ... -
Dagný Rétt upp hönd .... -
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Af hvaða plánetu kemur þetta kjararáðspakk? -
Kristbjörn Árnason Ekki skýr lína milli stjórnmálaflokkanna og dómsstólanna, sagði forsetinn -
Haraldur Haraldsson Fá 101.000 kr. launahækkun//var þetta nausinlegt?? var ekki verið að ... -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Það er svo. -
Vigdís Stefánsdóttir Takk! -
Guðmundur R Lúðvíksson Ekki meira en 101 þúsund ? -
Gísli Foster Hjartarson Sanngjörn launahækkun -
Björn Birgisson Launahækkunar klikkun -
Sigurður Haraldsson En hvað með heilbrigðisstarfsmenn. -
Gunnar Heiðarsson Góð skilaboð inn í kjarasamninga launafólks -
Ingunn Guðnadóttir Kjarasamningar -
Sigríður Sigurðardóttir HÆKKUN!? -
Kolbrún Hilmars Launahækkun eða yfirvinna? -
Ólafur Gíslason Aðrir taka á sig launalækkanir... -
-
Guðmundur E Sigurgeirsson Gott fordæmi hjá kjararáði
Innlent »
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent Forseti ASÍ gagnrýnir kjararáð
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent BSRB átelur launahækkun dómara
- Þriðjudagur, 11. maí 2010, Innlent Minna á fagleg vinnubrögð
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Geta fengið hærri laun en forsætisráðherra
- Miðvikudagur, 12. maí 2010, Innlent Vilja faglega uppstokkun
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Iðnaðarmenn
Atvinnutækifæri á Austurlandi Matthía...




































