Leggst gegn staðgöngumæðrun

. stækka

.

Femínistafélag Íslands leggst gegn því að staðgöngumæðrun verði heimiluð á Íslandi, hvort sem er í hagnaðarskyni eða velgjörðarskyni. Félagið telur hættulegt að ganga út frá því að barneignir séu álitin sjálfsögð réttindi og að litið sé á að konur, og æxlunarfæri þeirra, sem verkfæri í þeim tilgangi að tryggja öðrum þessi réttindi.

Félagið hvetur jafnframt heilbrigðisnefnd Alþingis, og Alþingi í heild sinni, til að hlýða á þá sérfræðinga sem vara við því að gera staðgöngumæðrun leyfilega. Í janúar 2009 skipaði þáverandi heilbrigðisráðherra starfshóp til að fara yfir álitaefni tengd staðgöngumæðrun. Þessi hópur skilaði áfangaskýrslu þar sem hann lagðist gegn því að staðgöngumæðrun yrði heimiluð að svo stöddu.

„Femínistafélagið varar jafnframt við því fyrirkomulagi á staðgöngumæðrun sem lagt er til í núverandi þingsályktunartillögu, en hún kveður á um að verðandi staðgöngumæður og verðandi foreldrar verði skyldug til að gera með sér bindandi samkomulag. Bindandi samningur getur falið í sér kúgun og með þessu móti er gengið mun lengra en í flestum öðrum löndum sem heimila staðgöngumæðrun. Ljóst er að staðgöngumæður eru í mjög viðkvæmri stöðu og velferð þeirra og barnsins verður ávallt að vera í fyrirrúmi. Ef leyfa á staðgöngumæðrun er mikilvægt er að staðgöngumóðirinn ráði yfir líkama sínum, taki sjálf allar ákvarðanir sem lúta að honum og meðgöngunni og hafi á öllum stigum rétt til að draga til baka samþykki sitt fyrir því að láta barnið af hendi við fæðingu.

Almenn sátt virðist ríkja um að ekki sé æskilegt að leyfa staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni. En hvernig á að tryggja bann við staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni ef staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni er leyfð? Hvar liggja mörkin og hvenær breytist velgjörðarskyn í hagnaðarsjónarmið? Eins og kemur fram í lokaáliti vinnuhópsins hefur reynsla annarra þjóða sýnt að erfitt er að koma í veg fyrir að slíkar aðstæður skapist. Til að mynda má spyrja sig hvort greiða eigi staðgöngumóður fyrir vinnutap, lækniskostnað og jafnvel uppbyggjandi líkamsrækt á meðgöngutíma? Hvernig er jafnframt hægt að koma í veg fyrir hverskonar kúgun eða þvingun? Í lokaáliti vinnuhópsins eru öll þessi atriði talin upp. Auk þess kemur orðrétt fram að „helstu rök gegn staðgöngumæðrun eru að hætta sé að litið sé á staðgöngumóðurina sem hýsil utan um barn (konan "smættuð í æxlunarfæri")“. Þrátt fyrir þetta er í þingsályktunartillögunni lögð áhersla á hröð vinnubrögð og að frumvarpið skuli lagt fram eins fljótt og mögulegt er. Þetta finnst Femínistafélaginu mjög alvarlegt og óábyrgt. Þrátt fyrir að skapast hafi þrýstingur á Alþingi á að koma málinu í gegn á sem skemmstum tíma eru málefni sem varða staðgöngumæðrun flókin og viðkvæm. Hröð afgreiðsla og fljótfærnisleg vinnubrögð í þessum málun eru ekki ásættanleg. Femínistafélag Íslands telur þann tímaramma sem ætlaður er fyrir vinnslu á mögulegu frumvarpi óraunhæfan með tilliti til allra þeirra spurninga sem enn er ósvarað. Slík vinna tekur ekki vikur eða mánuði heldur hleypur hún á árum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
TOYOTA LAND CRUISER
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
Hrossaskítur á sumarhúsalóðina
Nóg til, taktu eins og þú vilt. Afar gott að setja nýjan hrossaskít undir ungar ...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...