Olíuleki úr Goðafossi meiri en í fyrstu var óttast
Olíugildrur voru lagðar í nótt umhverfis gámaskipið Goðafoss á strandstað við Hvaleyjar í Óslóarfirði. Pål Bustgaard skipstjóri á norska björgunarskipinu Horn Flyer segir olíuleka frá Goðafossi miklu meiri en í fyrstu var talið og við vefsetrið F-b.no segir hann, að um hamfarir sé að ræða
Önnur gildran var lögð rétt við skipið og önnur utar til að stöðva þann leka sem slyppi út fyrir innri gildruna. Norska strandgæslan hefur tekið stjórn mála á strandstað Goðafoss í Óslóarfirði í sínar hendur. Hún hefur í nótt notið aðstoðar flugvéla og skipa sænsku strandgæslunnar.
Fjölda norskra björgunarskipa hefur verið stefnt á vettvang við Hvaleyjar og öll áhersla strandgæslunnar verið á að girða Goðafoss af til að hindra útbreiðslu olíumengunarinnar en strandstaðurinn er í náttúruparadís.
Olíutaumur 2,4 sjómílur á haf út
Ane Eide Kjærås hjá strandgæslunni segir við fréttavef Aftenposten að olía leki úr tönkum miðskips í Goðafossi. Þeir rúmium 500 tonn en óljóst sé hversu mikil olía hafi verið í þeim. Fréttavefurinn segir að í heildina sé talið að um 800 tonn af olíu hafi verið í Goðafossi þegar hann tók niðri á skerinu eftir að hafa borið af leið.
Olíurák hefur teygt sig hálfa þriðju sjómílu vestsuðvestur frá Goðafossi, að því er fram kemur á vef strandgæslunnar. Vegna hagstæðra vindátta á strandstaðnum stefnir olía sem stendur á haf út en ekki til lands.
Veður hefur verið tiltölulega gott á strandstað en Goðafoss liggur með 7° slagsíðu á skerinu við Hvaleyjar. Skipið var á siglingu frá Frederiksstad er það tók niðri.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. febrúar 2011, Innlent Goðafoss dreginn á flot
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent Olíubrák hefur náð landi
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent Óttast olíumengun í Óslófirði
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent Ástæða fyrir strandinu
- Mánudagur, 28. mars 2011, Innlent Olíumengun úr Goðafossi skaðar fuglalíf
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































