Fagna friðun Langasjós
Græna netið, félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina, fagnar friðlýsingu Langasjós sem er nú orðinn hluti af Vatnajökulsþjóðgarði ásamt hluta Eldgjár í Skaftártungu. „Þetta eru merk tíðindi í sögu náttúruverndar á Íslandi og efla enn stórfengleik og aðdráttarafl stærsta þjóðgarðs í Evrópu,“ segir í tilkynningu.
Langisjór er eitt tærasta fjallavatn á Íslandi. Það er í Vestur-Skaftafellssýslu og dregur nafn sitt af lengd sinni en það er 20 km langt og 2 km breitt.
Í tilkynningunni frá Græna netinu segir einnig: „Með því að friðlýsa Langasjó batt Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra enda á ráðagerðir um að eyðileggja vatnið með svokallaðri Skaftárveitu, en ekki er nema um hálfur áratugur síðan sú framkvæmd var á teikniborðum ríkisfyrirtækisins Landsvirkjunar. Þá hófst öflug barátta náttúruverndarafla fyrir friðlýsingu Langasjós, og má minna á að hann er meðal náttúrusvæðanna sem nefnd eru sérstaklega í umhverfisstefnu Samfylkingarinnar, Fagra Íslandi.
Nú telja allir sem til þekkja að vatnið sé ein af helstu náttúruperlum landsins, enda er þar orðinn eftirsóttur ferðamannastaður. Má dæmi Langasjós verða stjórnvöldum til áminningar um að vanda til verka við ákvarðanir um orkuöflun og verndarnýtingu í náttúru Íslands.
Um leið og stjórn Græna netsins þakkar umhverfisráðherra og sveitarstjórnarmönnum í Skaftárhreppi þessa friðlýsingarframkvæmd og óskar þeim farsældar í stöfum leggur hún til að næsta stórverkefni í verndarnýtingu verði myndarleg stækkun friðlandsins í Þjórsárverum, sem bindi enda á öll áform um Norðlingaölduveitu.“
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Fagna friðun Langasjós/það er gott að ganga vel um landið ... -
Sævar Helgason Friðun Langasjávar fagnað af Græna netinu -
Sigurjón Benediktsson Miklir menn erum vér..... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hjákátleg samsuða samstarfsflokksins í kjölfar dóms. -
Sigurður Haraldsson Náttúran sér um þetta! -
Jóhann Elíasson ÞARF OPINBERA FRIÐLÝSINGU TIL VERNDAR NÁTTÚRUNNI???
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. júní 2010, Innlent Dofri formaður Græna netsins
- Föstudagur, 23. september 2011, Innlent Rætt um friðlýsingu Látrabjargs og Rauðasands
- Föstudagur, 30. september 2011, Innlent Þarf samþykki hundrað landeigenda
- Mánudagur, 16. ágúst 2010, Innlent Landeigendur segja ráðherra sniðganga þá
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Friðlýsa búsvæði tjarnaklukku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































