Hrikalegar afleiðingar skjálftans

Sunna Viðarsdóttir, verkfræðingur í  Christchurch á Nýja-Sjálandi, segir að afleiðingar jarðskjálftans í borginni séu hrikalegar. Hún óttast að fleiri eigi eftir að finnast látnir. Stöðugir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfar stóra skjálftans.

„Upplifun mín af skjálftanum gefur kannski ekki rétta mynd af því sem gerðist. Ég var í vinnunni og mér fannst þetta vera eins og stór eftirskjálfti frekar en einhver risaskjálfti. Það hristist allt í talsvert langan tíma maður hugsaði hvort þetta ætlaði ekki að fara að hætta. Ég varð hins vegar hálfhissa þegar allir voru sendir heim úr vinnunni. Ég fékk aftur á móti sjokk þegar ég fréttir af afleiðingum skjálftans,“ sagði Sunna.

Sunna starfar sem verkfræðingur í Christchurch og hún var ásamt samstarfsmönnum sínum að steypa þegar skjálftinn reið yfir. Hún sagði að engin óhöpp hefðu orðið á vinnustaðnum, en fólk hefði eðlilega orðið hrætt, m.a. við þunga hluti sem héngu í krana. Fólk hefði forðað sér.

Sunna sagði að það væru ekki miklar skemmdir þar sem hún byggi, en ástandið væri mjög slæmt í miðborginni og í austurhluta borgarinnar. „Það er allt rafmagnslaust og vatnslaust. Miðborgin er lokuð af, en fréttir hafa borist af því að þar sé fólk lokað inn í húsum sem hrundu. Útvarpið hefur í dag verið að tala við fólk sem horfði á byggingar hrynja og sá fólk lokast inni. Þetta eru hrikalegar frásagnir.“

Sunna sagði hermenn væru mættir á staðinn til að aðstoða við björgun. „Í austurbænum hafa myndast uppsprettur. Vatn flæðir það upp úr jörðinni og ég talaði við konu sem ók eftir götu þar sem vatn flæddi hátt upp á bíl hennar. Það hafa líka myndast stórar holur í götum og dæmi um að bílar hafi ekið ofan í þær þannig að afturhjólin standi upp úr.“

Upptök jarðskjálftans eru nálægt hafnarbænum Littleton Harbour. „Mér skilst að þar sé allt í rúst. Bærinn er lokaður af vegna þess að það þarf að fara í gegnum göng til að komast til hans og þau eru lokuð. Ég veit ekki hvort það er vegna skemmda á göngunum eða vegna ótta um öryggi þeirra.“

Sunna sagði að margt fólk í Christchurch hefði verið á tánum eftir skjálftann í september. Eftirskjálftarnir hefðu hins vegar verið farnir að minnka og lengra verið á milli þeirra. „Jarðskjálftar voru svona að hverfa úr huga manns, en svo kemur þetta og ég held að þetta sé rosalegt sjokk fyrir marga.“

Sunna sagðist óttast að fleiri eigi eftir að finnast látnir. Fyrstu tölur voru um að 17 hefðu látist. Síðan hefi verið talað um 65. Hún sagði að aðstæður til að hlúa að slösuðum væru erfiðar því að ákveðið hefði verið að tæma spítalann þar sem byggingin væri ekki talin örugg. Einnig hefði þurft að tæma lögreglustöðina.

Sunna Viðarsdóttir verkfræðingur í Christchurch.

Sunna Viðarsdóttir verkfræðingur í Christchurch.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
Veglegur kaupauki með Herbalife
Er með 3 pakka með MJÖG veglegum kaupauka. Startpakka á 13.800 kr., Brennslupak...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...