Fréttaskýring: Mjólkurkýr á fjórum hjólum

Morgunblaðið Baldur Arnarson baldura@mbl.is
Eftir því sem bensínverðið hækkar fara tekjur ríkisins af hverri bifreið vaxandi. Bensínverðið sló enn eitt metið í gær og um leið féll metið í bensínsköttum á Íslandi.

Tölurnar tala sínu máli.

Hjón með tvo bíla greiða nú þannig samtals hátt í 270.000 krónur á ári í skatt af bensíni miðað við 15.000 km meðalakstur og 8 lítra eldsneytiseyðslu á hverja ekna 100 km. Er þá miðað við lægsta verð í sjálfsafgreiðslu, eða 221,9 krónur.

Þar með er ekki öll sagan sögð því hér er ekki tekið tillit til skattlagningar vegna hjólbarða, varahluta og viðhalds en ljóst má vera að hún nemi að minnsta kosti tugum þúsunda á ökutæki. Þá ber að hafa í huga að 40% af útsöluverði nýrrar bifreiðar fara í vörugjöld og aðra skatta, að því er Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) áætlar.

Yfir helmingur í skatta

Við ofangreinda útreikninga á bensínsköttum er gengið út frá því að ríkið taki 50,3% af bensínverðinu í skatta og er það einnig byggt á gögnum frá FÍB. Til samanburðar var hlutfallið 52,8% árið 1999.

Það þýðir að frá árinu 1999 hafa bensínskattar hækkað úr 87.462 krónum í 133.938 krónur á ári, að teknu tilliti til breytinga á vísitölu, eða um 53% á tímabilinu. Miðast tölurnar við að eknir séu 15.000 km á ári og að ökutækið eyði 8 lítrum á hverja 100 ekna km.

Skal tekið fram að margar bifreiðar eru nú mun sparneytnari, líkt og rakið er í litla rammanum hér til hliðar. Fjöldi bifreiða er hins vegar eyðslufrekari og er þessi tala höfð til viðmiðunar þar sem hún er í ódýrasta verðflokki á síðu FÍB yfir rekstrarkostnað bifreiða 2010. Í næstu flokkum FÍB eru bifreiðar sem eyða 9 og 11 lítrum á hundraðið og er því einnig miðað við þær hér.

Þá er eingöngu miðað við sjálfsafgreiðsluverð á bensíni og látið ógert að taka dísilverð með í reikninginn. En eins og ljósmyndin á síðunni sýnir nálgaðist dísilverðið 230 krónur í sjálfsafgreiðslu í gær.

Þeir sem kjósa þjónustu á bensínstöðvum greiða meira fyrir áfyllingu og þar með hærri skatta.

Skattlagning af bensíni í krónum talin tekur mið af heimsmarkaðsverðinu á eldsneyti og leiða tölur FÍB í ljós að bensínverð hefur hækkað um rúm 60% síðan 1999, að teknu tilliti til breytinga á vísitölu. Er þá reiknað með því að bensínlítrinn kosti 221,9 krónur í dag.

Ferðalög nú miklu dýrari

Vart þarf að taka fram að kostnaður vegna ferðalaga innanlands á eigin ökutæki hefur stóraukist og hafa gengishrun krónunnar og himinhátt heimsmarkaðsverð á olíu lagst á eitt um að þoka eldsneytisverðinu í sögulegar upphæðir.

Þessi munur kemur glöggt fram þegar reiknað er hversu langt ökumaður á bifreið sem eyðir 8 lítrum á hundraðið kemst í dag fyrir sama fé og hann gerði árið 1999.

Nægir þar að taka tvö dæmi.

Segjum að árið 1999 hafi ökumaður haft nægt eldsneyti til að aka frá Reykjavík til Hveragerðis, eða 45 km leið samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Færi sami ökumaður á bensínstöð með sama fé til eldsneytiskaupa í dag kæmist hann aðeins 27,8 km áleiðis og yrði því bensínlaus á miðri heiði.

Hyggist sami ökumaður skreppa norður til Akureyrar frá Reykjavík fyrir sama fé og dugði til bensínkaupa fyrir ferðina 1999 myndi hann aðeins komast 236 km af alls 382 km og er þá miðað við stystu ferðaleið á sama vef.

Skýrar vísbendingar eru um að bensínverðið sé farið að leiða til breytts umferðarmynsturs.

Þetta má lesa úr umferðartölum á vef Vegagerðarinnar en þar má sjá að umferðin í janúarmánuði á höfuðborgarsvæðinu var 8% minni en í fyrra, en eins og sjá má á stóra kortinu hér á síðunni hækkaði bensínverðið um 12% á milli ára.

Kostnaðurinn við akstur innanlands hefur enda aukist gríðarlega.

Ökumaður staðalbifreiðarinnar í þessum dæmum – fólksbifreiðar sem eyðir 8 lítrum á hundraðið – þarf til dæmis að verja 13.562 krónum í bensín þegar hann ekur fram og til baka á milli Reykjavíkur og Akureyrar og er þá ekki tekið tillit til miðaverðs í Hvalfjarðargöngum eða annars aksturs í ferðinni.

Sé ökumaðurinn á bifreið sem eyðir 11 lítrum á hundraðið kostar bensínið 18.648 krónur. Stök ferð í göngin kostar 900 krónur og kostar ferðin því 20.500 krónur sé ekki reiknað með afslætti í göngin.

HAGSÝNI RÆÐUR FÖR

Skipta yfir í litla bíla

Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna, telur hátt eldsneytisverð skýra að miklu leyti hvers vegna kaupendur sækja í auknum mæli í minni og eyðsluminni ökutæki en áður.

Vísbendingar séu um að millistéttarfólk sé farið að kaupa nýjar bifreiðar á ný eftir hrunið sem hafi orðið í bílasölu í mars 2008.

Að sögn Benedikts horfir meðaltekjufólk á hagkvæmnina af því að reka eyðslugrannan bíl þegar það velur að skipta út eldra, stærra og eyðslufrekara ökutæki. Hann telur allur líkur á að þróunin muni halda áfram og að það muni senn fara að hafa áhrif á samsetningu flotans.

BENSÍNVERÐ HEFUR ÁHRIF Á MARKAÐ MEÐ NOTAÐA BÍLA

Bensínhákar seljast minna

„Það er klárt mál að það hefur dregið úr sölu á bensín- og dísilfrekum notuðum bílum. Eyðslutölur eru farnar að skipta mun meira mæli þegar maður dregur fram lykilþætti sem fólk spyr um þegar það kaupir bíl,“ segir Dagur Jónasson, sölustjóri hjá Bílalandi.

„Vægi eldsneytisnotkunar er orðið mjög mikið þegar kaupendur gera dæmið upp. Sumir bílar eru þó enn mjög vinsælir þótt þeir eyði miklu en heilt yfir hefur dregið úr sölu notaðra eyðslufrekra bíla. Minni sala á eyðslufrekum bílum skýrist hins vegar ekki eingöngu af bensínverðinu, heldur líka af þeirri allsherjar kreppu sem bitnað hefur á allri bílasölu í landinu. Bílaflotinn er að eldast hratt.“

Fara sjaldnar í bústaðina

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, fylgist grannt með umferðarmynstrinu.

Að sögn Runólfs hafa ökumenn sett sig í samband við félagið og lýst því hvernig þeir hafa dregið úr akstri vegna hás bensínverðs.

Dæmi séu um að sumarhúsaeigendur hafi dregið úr ferðum í bústaði sína í sparnaðarskyni og að eigendur stórra pallbíla noti þá orðið eingöngu til hátíðabrigða, eða því sem næst, vegna stighækkandi bensínkostnaðar.

Hátt í 600.000 kr. á ári

Runólfur segir ekki óeðlilegt að miða við að pallbíll eyði 17 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri.

Slík eyðsla þýðir að bensínkostnaðurinn er nú 565.845 krónur á ári, miðað við 15.000 km akstur, og fara þar af 284.620 kr. í skatt.

Sé gengið út frá því að pallbíllinn endist í tíu ár greiðir ökumaðurinn því hátt í 3 milljónir króna í bensínskatta á líftíma bílsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gaseldavél í sumarbústaðinn
Til sölu gaseldavél með þremur hellum og bakarofni ásamt litlum gaskút. Upplýsi...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,hátt og lágt drif,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 35...
 
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...