Myndi rýra eignastöðu bankans um 16 milljarða

Landsbankinn ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem bankinn höfðaði gegn þrotabúi Motormax ehf. Segir bankinn að ef öll erlend lán af þessum toga yrðu talin ólögmæt, yrðu neikvæð áhrif á eignastöðu bankans að hámarki um 16 milljarðar króna.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag í ágreiningsmáli þrotabús Mótormax  og Landsbankans. Málið er höfðað vegna erlends láns sem Mótormax  hafði tekið hjá Landsbanka Íslands.

Af hálfu þrotabús Mótormax var því haldið fram að lánið væri ekki í erlendri mynt heldur í íslenskum krónum með gengistryggingu við erlenda mynt. Landsbankinn telur hins vegar að umræddur lánssamningur feli í sér skuldbindingu í erlendri mynt.

Héraðsdómur féllst á rök þrotabúsins en Landsbankinn telur óhjákvæmilegt að fá dóm Hæstaréttar Íslands um þetta ágreiningsefni og mun því kæra niðurstöðuna.

Málið sætir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti og er endanlegrar niðurstöðu að vænta á næstu vikum.

Endanlegt uppgjör Landsbankans fyrir árið 2010 liggur ekki fyrir og því ekki hægt að meta nákvæmlega áhrif þess á bankann staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.  Ljóst er þó að ef öll erlend lán af þessum toga yrðu talin ólögmæt, yrðu neikvæð áhrif á eignastöðu bankans að hámarki um 16 milljarðar króna.

Í málinu er fjallað um algengasta form lána Landsbankans í erlendri mynt til fyrirtækja og þó þessi málalok hefðu umtalsverð áhrif, þá væri fjárhagsstaða bankans enn sterk,  eiginfjárhlutfall hans yrði áfram hátt og vel umfram það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um.

Kröfum í gengislánamáli hafnað

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert