Nýsköpunarverðlaunin afhent

Verðlaunahafarnir með viðurkenningar sínar.
Verðlaunahafarnir með viðurkenningar sínar. mbl.is/Árni Sæberg

Verkefnið Pantið áhrifin frá Móður Jörð hlaut í dag nýsköpunarverðlaun forseta Íslands. Um er að ræða hugmyndafræðilegan veitingastað þar sem upplifun, fræðsla og umhverfisvitund fara saman.

Verkefnið var unnið af  Auði Ösp Guðmundsdóttur, Emblu Vigfúsdóttur, Katharínu Lötzsch og Robert Petersen.

Hugmyndin að veitingastaðnum kviknaði haustið 2009 í áfanga við Listaháskóla Íslands sem kallast Stefnumót hönnuða og bænda. Þar komu vöruhönnunarnemar og bændur saman að nýsköpun og verðmætaaukningu íslensks landbúnaðar.

Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi sérhæfir sig í framleiðslu lífrænna matjurta sem seldar eru undir vörumerkinu Móðir Jörð.  Hugmyndafræði Eymundar er grundvöllur hugmyndarinnar að veitingastaðnum og staðbundin framleiðsla og vistvæn hráefni eru hornsteinn hans. Staðurinn sjálfur er byggður úr timbri úr Hallormsstaðarskógi  og réttirnir búnir til úr íslensku hráefni, mestmegnis frá Vallanesi.

Kappkostað var að nota eins nærtækan efnivið og völ var á og margar vettvangsferðir farnar í leit að möguleikum í hráefni og vinnslu. Staðurinn er sampakkanlegur og getur því ferðast milli landshorna eftir því hvernig vindar blása

Það var mat dómnefndar að þetta verkefni hefði til að bera alla þá eiginleika sem lagðir voru til grundvallar við mat á verkefnum.  Þannig gæti það leitt til nýsköpunar, hagnýtingar möguleikar þess væru miklir og það stuðlaði vel að samstarfi háskóla, stofnanna og fyrirtækja, auk þess sem sjálfstætt framlag nemenda var mikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert