Innlent
| mbl
| 24.2.2011
| 11:15
Fangelsi fyrir árás á nýársmorgun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 24 ára karlmann, Andra Vilhelm Guðmundsson, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á nýársmorgun. Honum er einnig gert að greiða fórnarlambi sínu eina milljón króna í miskabætur, og 750 þúsund krónur í sakarkostnað. Andri Vilhelm var einnig dæmdur í nóvember sl. í tveggja og hálfs fangelsi fyrir aðra stórfellda líkamsárás og fleiri brot.
Andri var ákærður fyrir að hafa utandyra við Hótel 1919 í Hafnarstræti í Reykjavík veist með ofbeldi að 34 ára karlmanni, m.a. sparkað í hann, svo hann féll í gangstéttina og síðan sparkað ítrekað í höfuð hans og líkama þar sem hann lá. Afleiðingar árásarinnar urðu þær að Ólafur hlaut lífshættulegan höfuðáverka, þ.e. höfuðkúpubrot með utanbastsblæðingu undir brotinu hægra megin á gagnaugasvæði og heilamar vinstra megin í gagnstæðum hluta heila.
Í læknisvottorði kemur fram að batahorfur fórnarlambsins séu nokkuð góðar, þó þannig að mar væri skemmd á heilavef sem gæti haft áhrif og leitt til persónuleikabreytinga og slakara minnis. Og ef heilafrumur dæju yrði heilastarfsemin slakari til framtíðar litið auk þess sem marið hafi verið nálægt talstöðvum og gæti því haft áhrif á tal.
Andri neitaði sök og kvað manninn líklega hafa dottið aftur fyrir sig þegar þeir áttust við. Hann hafi ekki komið þar að. Í málinu lá hins vegar fyrir framburður þriggja einstaklinga, sem öll urðu vitni að atburðinum, en tengjast hvorki Andra Vilhelm né fórnarlambi hans. Framburður þeirra var afdráttarlaus um atvik öll og lýstu þau atvikum þannig að Andri Vilhelm hafi sparkað í manninn sem við það hafi fallið aftur fyrir sig og niður tröppur framan við hótelið. Eftir fallið hafi fórnarlambið legið eftir og ekki hreyft sig. Andri Vilhelm hafi gengið rakleitt að því og sparkað ítrekað í höfuð þess eða trampað á því.
Þrjú vitni studdu framburð Andra Vilhelms en þau voru öll samferða honum nýársmorgun og eru vinir hans. Dómurinn taldi framburð allra þessara vitna haldin þeim annmarka að töluvert misræmi var á milli framburðar þeirra hjá lögreglu og fyrir dóminum. Gátu þau lítið borið um atvik er lögregla tók skýrslu af þeim í framhaldi af atburðinum en við aðalmeðferð málsins um sex vikum eftir atvikið var minni þeirra orðið töluvert betra um atvikin. Var skýring þeirra á breyttum framburði að mati dómsins ekki trúverðug.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent 4 ára fangelsi fyrir árás
- Mánudagur, 14. febrúar 2011, Innlent Sparkaði þrívegis í höfuð liggjandi manns
- Mánudagur, 14. febrúar 2011, Innlent Réttað yfir ofbeldismanni
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Innlent Óskað álits umboðsmanns
- Þriðjudagur, 20. desember 2011, Innlent Dæmdur fyrir stórfellda líkamsárás
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Yamaha FJR 1300 2005 ABS
Ekið 28 þús km.Umboðshjól.Skoðað 2013
Hliðartöskur og Topptaska.
Nýtt afturdek...
Vatnskassaviftur - tilboð
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...