Komum fækkaði um 1,2%
Komum sjúklinga til Landspítalans fækkaði um 1,2% á síðasta ári, að því er kemur fram í starfsemistölum fyrir árið 2010 sem koma út í næstu viku. Alls eru þetta rúmlega 103.000 einstaklingar.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, greinir frá þessu í föstudagspistli sem er birtur á vef sjúkrahússins. Hann tekur fram að þetta séu einstaklingar sem margir hverjir leiti oft til spítalans en ef sérhver sé einungis talinn einu sinni þá sé um 103.384 einstaklinga að ræða árið 2010.
Hann segir að inniliggjandi sjúklingum hafi að meðaltali fækkað um 4,4%, legum um 5,1% og legudögum um 4,4%. Sjúkrahúslega hafi styst um 3,6% að meðaltali og sé nú 6,7 dagar.
Skurðaðgerðum hafi fækkað um 1,9%, fæðingum um 2,3% og komum á allar bráðamóttökur spítalans um 3,2%. Komur á dag- og göngudeildir séu nánast jafnmargar (fækki um 0,6%).
Þá segir Björn að rannsóknum á rannsóknarsviði hafi fækkað um 16,7% en stefnt hafi verið að fækkun þeirra.
„Það eru færri rúm opin allan sólarhringinn og færri starfsmenn að vinna þau verk sem vinna þarf. Allt þetta hefur aukið álag á spítalanum en á móti kemur, að einhverju leyti, að minni starfsemi var á spítalanum 2010 en árið 2009,“ skrifar Björn.
„Óljóst er hvort þessi fækkun sé til frambúðar en margt bendir til þess að starfsemi spítalans fari nú aftur vaxandi samkvæmt gögnum um starfsemina núna í desember og janúar síðastliðnum,“ segir hann ennfremur.Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent 52 milljóna tekjuafgangur
- Laugardagur, 22. október 2011, Innlent Sjúklingum fjölgar á Landspítala
- Föstudagur, 24. júní 2011, Innlent Framleiðslan aukin fyrir lægri framlög
- Föstudagur, 16. apríl 2010, Innlent LHS innan fjárlaga
- Laugardagur, 30. október 2010, Innlent Hagnaður hjá Landspítala
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































