Ræddu við matsfyrirtækin út af Icesave
Hollenska dagblaðið De Telegraaf sló frétt af ákvörðun forseta Íslands um synjun Icesave-laganna upp á forsíðu sl. mánudag.
„Auðvitað hafa ýmsir aðilar verið að sinna því, að upplýsa um stöðuna. Það hefur verið rætt við matsfyrirtækin og það hafa ýmsir talað saman,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um upplýsingamiðlun stjórnvalda erlendis vegna synjunar forsetans á nýju Icesave-lögunum.
„Ef spurt er um viðbrögðin [við synjuninni] almennt er þau eins og við mátti búast. Það hefur heilmikið verið um þetta fjallað og það er ekki hægt að horfa fram hjá því að þetta setur ákveðna óvissu og ákveðið spurningamerki aftur við okkar stöðu.
Erlendir fjölmiðlar fjalla um umfjöllun matsfyrirtækjanna, svo dæmi sé tekið. Það hefur ákveðin áhrif á umræðuna. Annars má segja að þetta sé þokkalega rólegt. Ég tel ekki að það orðið neitt fár út af þessu. Að því leyti til held ég að við getum verið sáttir þar. Nú viðbrögð í Hollandi og Bretlandi hafa verið mjög yfirveguð, þ.e.a.s. viðbrögð stjórnvalda.
Ef þau hafa verið einhver hafa þau verið mjög yfirveguð. Það sama gildir ekki endilega um einstaka þingmenn í Hollandi, svo dæmi sé tekið. Ég held að í sjálfu sér bíði menn bara eftir því að við klárum þessa kosningu.“
- Veistu hvenær kynning á sjónarmiðum íslenskra stjórnvalda í málinu á erlendri grundu fer af stað?
„Auðvitað hafa ýmsir aðilar verið að sinna því, að upplýsa um stöðuna. Það hafa bæði utanríkisþjónustan og ráðuneyti og seðlabankinn og fleiri gert í samskiptum við sína aðila. Það hefur verið rætt við matsfyrirtækin og það hafa ýmsir talað saman. Það er fyrst og fremst verið að upplýsa um stöðuna og hvað gerist næst.“
- Hefur verið leitað til þín?
„Já. Ég hef farið í viðtöl hjá nokkrum fjölmiðlum. Ég hef ekkert sérstaklega verið að gefa færi á mér en þó farið í nokkur viðtöl,“ segir Steingrímur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. apríl 2011, Innlent Ný leið mörkuð
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 16. apríl 2011, Innlent Óréttlátt að lækka lánshæfi nú
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Fimmtudagur, 21. apríl 2011, Innlent Segir Moody's hafa lagst á sveif með já-mönnum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































