Heimurinn er að breytast hratt
„Heimurinn er að breytast hratt, Háskóli Íslands þarf að móta starf sitt og rannsóknir til að íslenskt samfélag geti fótað sig í nýrri heimsmynd," sagði Kristín Ingólfsdóttir rektor við brautskráningu nær 500 kandídata frá háskólanum við upphaf hundraðasta afmælisárs hans.
„Háskólinn hefur náð miklum árangri í rannsóknum og kennslu undanfarin ár og um þennan árangur þarf að standa vörð," sagði Kristín, en lagði jafnframt áherslu á að skólinn þyrfti að móta nýjar áherslur til að fást við ný viðfangsefni. „Til þess þarf vitaskuld nýtt fjármagn og við verðum að leita allra tiltækra leiða til að tryggja það," sagði háskólarektor.
Kristín lagði á það áherslu í ræðu sinni að efnahagsleg og pólitísk þungamiðja í heiminum væri að færast í átt að löndum í Asíu og Suður Ameríku og að það muni hafa gífurleg áhrif á valdajafnvægi, viðskipti, efnahag, menningu og stjórnmál. Kína væri orðið annað stærsta hagkerfi heims og helsti lánardrottinn þeirra sem áður máttu sín mest. Lönd á borð við Indland, Brasilíu og önnur lönd í Asíu og Suður Ameríku væru á hraðri siglingu. Á sama tíma væri pólitískt umrót að skapa nýja samfélagsmynd í löndum frá Marokkó í vestri til Pakistan í austri. Þetta, ásamt nýjum viðfangsefnum sem skapast af loftslagsbreytingum, þörfum fyrir aukna matvælaframleiðslu, heilsufarsógnum og leit að nýjum orkugjöfum, væri meðal þess sem myndi í vaxandi mæli hafa áhrif á viðfangsefni háskólans.
Háskólarektor benti á að alþjóðleg tengsl Íslands styrktust einnig með tungumálanámi og með því að mikill fjöldi erlendra stúdenta um allan heim legði stund á íslenskunám. Auk kennslu fyrir erlenda stúdenta við Háskóla Íslands er nútímaíslenska kennd við 40 erlenda skóla í samvinnu við háskólann, þar á meðal í Japan og Kína. Forníslenska er svo kennd við 100 skóla. Að auki eru um 70 þúsund manns víðs vegar um heim áskrifendur að íslenskukennsluforriti sem Hugvísindastofnun Háskólans hefur þróað fyrir notkun á Netinu, Icelandic Online.
Rektor vakti einnig athygli á að skólinn þyrfti að taka virkan þátt í rannsóknum og fræðslu um mótun nýrrar samfélagsmyndar hér á Íslandi í kjölfar fjármálahruns og dvínandi trausts á ýmsum samfélagsstofnunum. Hún ræddi sérstaklega um hlutverk skólans í að treysta menntakerfið í landinu til að koma í veg fyrir að hér skapaðist langtímaatvinnuleysi ungs fólks. Hún benti á að í hópi atvinnulausra eru um 2.500 einstaklingar undir 25 ára aldri og flestir án framhaldsskólamenntunar.
„Við verðum að koma þessu unga fólki til mennta. En við verðum líka að rýna í skólakerfið og skilja hvers vegna þetta unga fólk hefur flosnað úr námi og breyta skólunum svo þeir þjóni betur ungu fólki með ólíkar þarfir á sviðum bóknáms, verknáms og listnáms," sagði háskólarektor.
Kristín Ingólfsdóttir þakkaði sérstaklega velvild og stuðning einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka sem hefðu stutt skólann á erfiðum tímum með því að styrkja rannsóknir kennara og nemenda, tækjakaup og byggingu húss fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Þetta skipti skólann gríðarlega miklu máli, ekki síst nú á þrengingatímum.





































