Icesave þýðir hærri skatta
„Menn neita að horfast í augu við að daginn eftir að þeir eru búnir að samþykkja Icesave þýðir það 26,1 milljarð í skattahækkanir til að greiða þegar áfallna hærri vexti,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um þörfina fyrir að auka álögur til að standa undir Icesave-samningnum.
„Þetta mun þýða hærri skatta, miklu hærri skatta, því að þetta eru ekki peningar sem að koma úr þrotabúinu. Þetta eru vaxtagreiðslurnar og við þurfum að borga vextina beint úr vasanum,“ segir Þór og bætir því við að annað hvort þurfi að hækka skatta strax eða slá lán fyrir upphæðinni sem síðan kalli á skattahækkanir síðar í framtíðinni.
„Hin leiðin er að fara í meiri niðurskurð.“
Almenningur þolir ekki meiri skattahækkanir
- Hvernig meturðu svigrúm einstaklinga til að taka á sig skattahækkanir?
„Ég held að það sé ekki neitt. Það er óþarfi að gaumgæfa hagtölur í því efni. Maður finnur það á eigin buddu. Ég held að meðaltekjumaðurinn sé með allt sitt í járnum,“ segir Þór og víkur að stöðu þjóðarbúsins.
„Ég hef haldið því fram lengi að fyrir utan Icesave séu skuldir þjóðarbúsins okkur ofviða. Hlutur fjármagnsins og þess sem að það tekur til sín af tekjum fólks, annað hvort með afborgunum af lánum eða í formi skatta til að standa straum af vöxtum af lánum ríkisins, er orðinn alltof stór nú þegar ... Við þetta bætist að umgjörð skuldastýringar ríkissjóðs er óviðunandi. Það er ekki eins og ríkisstjórnin viti það ekki. Hún vill hafa málin í þessum farvegi vegna þess að þá fæst ekki almennileg yfirsýn yfir stöðuna.“
Flytja ekki út meiri fisk
- Hvað með þau rök að það sé meiri verðmætasköpun á sjóndeildarhringnum sem geri ríkinu kleift að stækka tekjugrunn sinn?
„Maður heyrir það. En hvað á að gera? Á að flytja út fleiri fiska? Á að framleiða meira ál?,“ spyr Þór og tekur fram að vissulega séu vaxtarmöguleikar í öðrum greinum.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Icesave þýðir hærri skatta/ Ekki spurning Steingrímur í startholunum!!!! -
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Ekki hlusta á hagfræðinginn, hlustið frekar á jarðfræðinginn!!! -
Ómar Geirsson ICEsave 3 er uppá 220 milljarða. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Icesave-landvættirnir, fyrir hvað standa þeir? -
Jóhann Elíasson BJÓST VIRKILEGA EINHVER VIÐ ÖÐRU????????????? -
Kristinn Karl Brynjarsson 47 milljarðir og málið dautt!!! -
Axel Jóhann Axelsson Skattahækkanir vegna Icesave III -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Þjóðin stendur ekki undir Icesaveskuldinni! -
Guðrún María Óskarsdóttir. Með ólíkindum að meirihluti Alþingis hafi samþykkt þennan gjörning. -
Magnús Helgi Björgvinsson Þetta er nú einmitt það sem Þór Saari var að ... -
Egill Jón Kristjánsson Liggur Soros í leyni og fylgist með? -
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Eykur líkur á greiðsluþroti ríkisins
- Laugardagur, 9. apríl 2011, Innlent Icesave kallar á hærri skatta
- Föstudagur, 17. desember 2010, Innlent Óvíst að ríkið ráði við Icesave
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































