Styðja aðgerðir gegn Líbíu
Íslensk stjórnvöld taka undir harðorða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var um helgina þar sem valdbeiting og mannréttindabrot stjórnvalda í Líbíu eru fordæmd, vopnasölubann sett á landið, svo og ákvæði um ferðabann og frystingu eigna Múammars Gaddafis, einræðisherra Líbíu í 42 ár.
Sakamáladómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag var ennfremur falið að rannsaka árásir öryggissveita Gaddafis á íbúa landsins og ákvarða hvort þeir sem bera ábyrgð á morðum öryggissveitanna og öðrum mannréttindabrotum verði sóttir til saka.
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafi í síðustu viku fordæmt framferði líbískra stjórnvalda gagnvart óbreyttum borgurum. Íslensk stjórnvöld hafi fylgt þessari fordæmingu eftir, m.a. með stuðningi við ályktun öryggisráðsins. Í utanríkisráðuneytinu sé nú þegar hafin vinna að innleiðingu ályktunar öryggisráðsins hér á landi.
Ísland var einnig eitt þeirra ríkja sem fór fram á sérstakan fund í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf um ástandið í Líbíu og sem stóð að ályktun í mannréttindaráðinu sl. föstudag þar sem mannréttindabrot líbískra stjórnvalda eru fordæmd harðlega. Í ályktuninni eru brotin sögð vera á mörkum þess að vera glæpir gegn mannkyni og þrýst á líbísk stjórnvöld að stöðva þegar í stað frekari mannréttindabrot. Þau eru einnig hvött til að tryggja ferðafrelsi almennra borgara, þ.m.t. ríkisborgara annarra ríkja, opna fyrir internet- og símaaðgang, hætta hótunum, ofsóknum og handtökum á almennum borgurum án dóms og laga.
Íslensk stjórnvöld hafa ennfremur tekið undir ákall Evrópusambandsins sl. fimmtudag um að þegar verði bundinn endi á ofbeldi gegn óbreyttum borgurum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Reglugerð um þvingunaraðgerðir gegn Líbíu
- Miðvikudagur, 30. mars 2011, Innlent Bretar reka fimm Líbíumenn úr landi
- Föstudagur, 19. ágúst 2011, Innlent Krefst þess að Assad víki
- Mánudagur, 16. maí 2011, Innlent Ekki heimild til að ráða tiltekna menn af dögum
- Föstudagur, 18. mars 2011, Innlent 12 milljónir í neyðarhjálp til Líbíu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































