17 þúsund lán endurreiknuð
Íslandsbanki hefur á síðustu vikum unnið að endurútreikningi húsnæðis- og bílalána, kaupleigusamninga og einkaleigusamninga einstaklinga í erlendum myntum. Um er að ræða nærri 12 þúsund bílalán og 5 þúsund húsnæðislán.
Bankinn stefnir að því að því að ljúka í þessari viku við endurútreikning á nær tíu þúsund bílalánum af þeim tæplega tólf þúsund lánum sem verða endurreiknuð.
Gert er ráð fyrir að síðasti áfangi endurútreiknings bílalána, samtals um 2000 lán, verði birtur viðskiptavinum á næstum fjórum vikum. Íslandsbanki hefur greitt út um einn og hálfan milljarð króna til viðskiptavina vegna endurútreiknings.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir, að bankinn hafi samhliða þessu hafið endurútreikning á húsnæðislánum og gert ítarlega úttekt á þeim lánasamningum sem hafi verið algengastir undanfarin ár. Bankinn hafi ákveðið að ganga lengra en breytingar á lögum, sem samþykktar voru af Alþingi í desember segja til um.
Það þýði að öll erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði verði endurreiknuð hjá Íslandsbanka, burt séð frá því hvort um íbúðarhúsnæði til eigin nota er að ræða eða ekki.
Þá bjóði Íslandsbanki einnig upp á höfuðstólslækkun og fleiri valkosti um vaxtakjör en lögin gera ráð fyrir, m.a. tímabundinn vaxtaafslátt frá óverðtryggðum húsnæðislánakjörum. Breytilegir óverðtryggðir vextir Íslandsbanka með tímabundnum afsláttarkjörum eru nú 3,75%.
5000 húsnæðislán endurreiknuð
Í heild verða um 5000 húsnæðislán endurreiknuð og hafa um eitt þúsund lán verið birt í heimabönkum viðskiptavina bankans. Stefnt er að því að endurútreikningur allra lánam sem teljast til húsnæðislána samkvæmt lögunum, verði birtur í heimabönkum viðskiptavina fyrir lok mánaðarins.
Þar til endurútreikningar liggja fyrir stendur viðskiptavinum með húsnæðislán áfram til boða að greiða mánaðarlega 5000 krónur af hverri upphaflegri milljón lánsins. Allar greiðslur verða teknar með inn í endurútreikning lánsins.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Innlent Landsbankinn birtir endurútreikninga
- Fimmtudagur, 1. júlí 2010, Innlent Íslandsbanki fer að tilmælunum
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Endurreikningi erlendra bílalána lokið í október
- Föstudagur, 1. október 2010, Innlent Endurútreikningi að ljúka hjá SP-fjármögnun
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Geta valið um endurgreiðslu eða innborgun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































