Opin heimild til hjálmaskyldu

Þegar menn þeysa um á keppnishjálmum eru þeir oftast með hjálma, enda getur hraðinn orðið ... stækka

Þegar menn þeysa um á keppnishjálmum eru þeir oftast með hjálma, enda getur hraðinn orðið mikill. mbl.is/Árni Sæberg

Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) óttast að innanríkisráðherra kunni „að setja á hjálmaskyldu fyrir fullorðna og jafnvel einnig skylda þá til að klæðast endurskinsfatnaði en hann færi heimild til þess skv. nýju frumvarpi til umferðarlaga. 

Landssamtökin benda m.a. á að þar sem hjálmaskylda hafi verið tekin upp hafi hjólreiðamönnum fækkað og hjólreiðamönnum sé ekki meiri hætta búin af höfuðáverkum en öðrum vegfarendum.

Í núgildandi umferðarlögum segir: „Ráðherra getur sett reglur um notkun hlífðarhjálms við hjólreiðar.“ Samkvæmt frumvarpinu er ráðherra veitt heimild til að setja ákvæði í reglugerð um öryggis- og verndarbúnað hjólreiðamanna og annarra óvarinna vegfarenda."

Í greinargerðinni með frumvarpinu segir að: „Hér gæti t.d. verið um að ræða frekari útfærslu á notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar, svo og um endurskinsfatnað og annan búnað til að gera gangandi og hjólandi vegfarendur sýnilegri í umferðinni og um kröfur til slíks búnaðar.“

Þyrfti ekkert samráð

Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM), segir að innanríkisráðherra gæti í sjálfu sér, upp á sitt einsdæmi og án alls samráðs, ákveðið að skylda hjólreiðamenn til að vera með hjálm og í endurskinsfötum. Hann gæti í raun einnig skyldað gangandi vegfarendur til að klæðast endurskinsvestum. „Þetta er ótrúlega opin heimild,“ segir hann. Standi vilji löggjafans til að koma á hjálmaskyldu væri hreinlegra að gera það með lagasetningu en ekki reglugerð enda sé aðkoma almenning að reglugerðarsetningu ekki tryggð.

Frumvarp til umferðarlaga hefur verið lengi í smíðum og er nú til meðferðar á Alþingi í annað sinn. Svipað ákvæði um hjálmaskyldu var í fyrra frumvarpi og lýstu LHM strax yfir að þau væru algjörlega andvíg hjálmaskyldu. Árni segir að samtökin hafi skilað inn þremur umsögnum um málið, tveimur til ráðuneytisins og einnig til samgöngunefndar Alþingis. Samtökinu eru með þau fjórðu í smíðum núna. Ráðuneytið hafi ekki hlustað á rök LHM hingað til og því sé ákvæðið enn inni í frumvarpinu.

Hjálmaskylda dregur oftar en ekki úr hjólreiðum

Árni segir að þar sem hjálmaskylda hafi verið innleidd hafi hún oftar en ekki leitt til minni hjólreiða. Fækki hjólreiðamönnum dragi úr öryggi hjólreiðamanna. „Öryggi hjólreiðamanna og gangandi vegfarenda er best tryggt ef margir ganga eða hjóla,“ segir hann. Stór hluti af skýringunni sé að ökumenn búist þá frekar við hjólreiðamönnum og gangandi vegfarendum. Fækkun hjólreiðamanna leiði einnig til verri lýðheilsu.

Árni bendir á að þótt hjálmar geti vissulega varið hjólreiðamenn gegn höfuðáverkum þá eigi hið sama í raun við um gangandi vegfarendur. Með öðrum orðum þá væru jafn sterk rök fyrir hjálmaskyldu gangandi eins og hjólandi. „Hjólreiðamönnum er ekki hættara við höfuðmeiðslum en öðrum vegfarendum og slysatölur benda ekki til þess að hjólreiðamenn séu í meiri hættu en gangandi, raunar þveröfugt,“ segir hann. Frá og með árinu 1998 hafi 275 vegfarandur látist í slysum á Íslandi, þar á meðal tæplega 30 gangandi vegfarendur. Enginn hjólreiðamaður hafi látist í slysi á sama tímabili.

Lögreglan vill hjálmaskyldu að viðlögðum sektum

Fjölmargir aðilar hafa skilað inn umsögn um frumvarpið á fyrri stigum.

Ekkert er fjallað um hjálmanotkun eða hjálmaskyldu í umsögnum Landlæknis, Félags íslenskra endurhæfingalækna eða í umsögn Taugalæknafélags Íslands.

Í umsögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er lagt til að öllum þeim sem eru á reiðhjóli, sama á hvaða aldri, verði gert skylt að nota hlífðarhjálm og að sektir liggi við ef út af er brugðið. Ekkert er fjallað um mögulega sektarfjárhæð og í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir sektarheimild.

Lögreglan bendir á að almenn hjólanotkun hafi aukist, m.a. með tilkomu hjólreiðastíga. Með aukinni umferð aukist líkur á óhöppum. „Þá hafa hjólreiðamenn heimild til að hjóla í almennri umferð og ætti það sama því að gilda um um þá og bifhjólamenn varðandi hjálmanotkun,“ segir í umsögn lögreglu. Þá er bent á að notkun fullorðinna á reiðhjólahjálmum getur virkað sem hvatning til banra um að nota hjálma einnig. „Af slíkri hvatningu veitir ekki. Erfitt er að sjá rök fyrir því að böörn noti reiðhjólahjálm en fullorðnir ekki,“ segir í umsögn lögreglunnar. Hjálmaskylda er fyrir börn 15 ára og yngri.

75% banaslysa vegna höfuðáverka

Rannsóknarnefnd umferðarslysa segir í sinni umsögn að rannsóknir hafi sýnt að 75% banaslysa hjólreiðafólks verði vegna höfuðáverka og vísa til skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Til mikils sé að vinna að koma í veg fyrir þessa skaðlegu áverka. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á varnaráhrifum hjólreiðhjálma/hlífðarhjálma sýni að þeir dragi úr líkum á alvarlegum höfuð- og heilaáverkum um 69-79%. „Varnaráhfrif hjálma eru þau sömu fyrir alla aldurshópa. Að mati RNU ætti að skylda allt hjólreiðafólk til að nota hlífðarhjálma,“ segir í umsögn nefndarinnar. 

Alls ekki á móti hjálmanotkun

Árni tekur fram að hann sé alls ekki á móti hjálmanotkun. Sjálfsagt sé að hvetja til hjálmanotkunar, veita upplýsingar um hjálmanotkun og annan öryggisbúnað. Slíkt verði þó að byggja á þekkingu og hófsemd.  Hjólreiðar séu síst hættulegri iðja en að ganga eða aka. Hverjum og einum hjólreiðamanni sé vel treystandi til að haga sér með ábyrgum hætti og hafa vit fyrir sér og sínum. Með því að setja á hjálmaskyldu sé með vissum hætti verið að færa ábyrgðina frá ökumönnum yfir á hjólreiðamenn. Auðvelt sé að sanna að hjólreiðamaður hafi ekki verið með hjálm en erfiðara að sanna að ökumaður sem ekur á hjólreiðamann hafi t.d. verið að kveikja sér í sígrettu, tala í símann, horfa eitthvað annað eða ekið óvarlega. Þá hafi áróður fyrir hjálmanotkun um of byggst á hræðsluáróðri, þótt það hafi reydnar færst til betri vegar í seinni tíð, m.a. vegna ábendinga frá LHM.

Hamingjusamir hjólreiðamenn í Hollandi

Árni bendir sömuleiðis á að Samtök evrópskra hjólreiðamanna leggist gegn hjálmaskyldu og það geri einnig hollensk yfirvöld. Í Hollandi séu hjólreiðar mestar í Evrópu, hjálmanotkun minnst og slysatíðni hjólreiðamanna með því minnsta sem þekkist. Norska vegagerðin hafi sömuleiðis lagst gegn hjálmaskyldu á börn í Noregi.

Hér má sjá myndband af hjólreiðum í Hollandi en af myndbandinu að dæma eru allir hjólreiðamenn þar með eindæmum hamingjusamir.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
Lazy boy stóll - microfiber áklæði
Hef til sölu 6 ára gamlan lazy boy stól, raunverulegur lazy boy stóll, keyptur í...
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
 
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...