Vilja takmarka erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi
Á seinni rýnifundi Íslands og ESB um sjávarútvegsmál lagði íslenska sendinefndin mikil áhersla á að haldið verði í möguleika á því að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi þannig að tryggt sé að afrakstur auðlindarinnar falli til á Íslandi.
Seinni rýnifundi Íslands og ESB um sjávarútvegsmál lauk í Brussel í dag. Á fundinum gerðu sérfræðingar Íslands grein fyrir íslenskri löggjöf á sviði sjávarútvegs. Fyrir íslenska hópnum fór Kolbeinn Árnason, formaður samningahópsins.
Íslenska sendinefndin lagði áherslu á sérstöðu íslensks sjávarútvegs sem er þjóðhagslega mun mikilvægari en í nokkru aðildarríki ESB. Greint var frá árangri Íslands við stjórnun fiskveiða sem er almennt betri en innan ESB. Þá var fjallað um sérstöðu Íslands hvað varðar staðbundna stofna og þá staðreynd að efnahagslögsaga Íslands liggur ekki að efnahagslögsögu nokkurs aðildarríkis ESB.
Á rýnifundinum var sérstök áhersla lögð á þá fyrirvara sem fram koma í áliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis vegna aðildarumsóknar Íslands, m.a. forræði íslenskra stjórnvalda yfir sjávarauðlindinni með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi. Í álitinu segir meirihlutinn mikilvægt að leggja áherslu á meginreglur hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna sem tryggir ákveðin grundvallarréttindi. Enn fremur að Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er þannig að réttindi Íslands til veiða úr þeim verði sem best tryggð. Sendinefndin lagði sérstaka áherslu á andstöðu Íslands við reglur ESB sem heimila brottkast á fiski.
Á fundinum var einnig lögð mikil áhersla á að haldið verði í möguleika á því að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi þannig að tryggt sé að afrakstur auðlindarinnar falli til á Íslandi, en lögð er sérstök áhersla á þetta atriði í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar.Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. mars 2012, Innlent Aðild hafi ekki áhrif á eignarhald á auðlindum
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Rýnifundi um byggðamál lokið
- Miðvikudagur, 4. apríl 2012, Innlent Rætt um sjávarútvegsmál og efnahagskreppuna
- Mánudagur, 27. febrúar 2012, Innlent Ögmundur skorar á Össur
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Söguleg stund fyrir Ísland
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































