Fréttaskýring: Víðtæk óánægja með verndaráætlunina

Vatnajökull. stækka

Vatnajökull. mbl.is/Rax

Morgunblaðið Guðni Einarsson gudni@mbl.is
Staðfesting Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs 28. febrúar sl. hefur vakið sterk viðbrögð.

Sjálfstæðismenn í umhverfisnefnd Alþingis hafa óskað eftir því að ráðherrann mæti á opinn fund nefndarinnar og upplýsi hvernig samráði við helstu hagsmunaaðila var háttað varðandi takmarkanir á útivist, umferð og veiðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Einnig að ráðherrann rökstyðji takmarkanirnar sem hann staðfesti.

Siv Friðleifsdóttir alþingismaður hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til umhverfisráðherra vegna málsins. Hún spyr m.a. um hvernig samráði hafi verið háttað við hópa á borð við Skotveiðifélag Íslands og Ferðaklúbbinn 4x4. Einnig hvort ráðherrann muni beita sér fyrir því að sátt náist við þessi félög.

Félög sem tengjast skotveiðum og ferðamennsku hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem vinnubrögðum við gerð verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs er mótmælt. Rauði þráðurinn í þeim er að ekki hafi verið haft samráð við þau við undirbúning verndaráætlunarinnar.

Skotveiðimenn funda um málið

Skotveiðifélag Íslands (Skotvís) og Skotveiðifélag Reykjavíkur efna til sameiginlegs opins fundar í kvöld í félagsheimili Skotreynar í Álfsnesi í kvöld vegna staðfestingar á verndaráætluninni. Stjórn Skotvís sendi frá sér ályktun þar sem bent er á að félaginu hafi „ekki á neinu stigi málsins verði boðin aðkoma að undurbúningsferlinu eins og skýrt er kveðið á í lögum um þjóðgarðinn. Auk þess að farið er á svig við stjórnsýslulög, t.d. með takmörkunum sem ganga gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga“.

Stjórn Ferðaklúbbsins 4x4, sem eru samtök jeppamanna, telur að vinnubrögðin standist ekki stjórnsýslulög og hyggst félagið kæra meðferð málsins. „Öll undirbúningsvinna að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er fráfarandi stjórn garðsins til vansa og hefði ráðherra án tafar átt að senda málið til nýrrar stjórnar garðsins og óska eftir að málið yrði unnið í sátt við þá fjölmörgu útivistarhópa sem nýta vilja garðinn svo sem jeppamenn, vélsleðamenn, hestamenn, skotveiðimenn, stangaveiðimenn, ferðaþjónustuaðila og fleiri,“ segir í yfirlýsingu 4x4.

Aðalfundur Landsamtakanna Ferðafrelsi, haldinn 28. febrúar, mótmælti harðlega staðfestingu ráðherrans. Í tilkynningu segir að Ferðafrelsi undirbúi „stjórnsýslukæru varðandi undirbúningsferli og vinnu við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og skoða jafnframt grundvöll á kæru fyrir dómstólum hér á Íslandi auk þess að fara með það mál alla leið fyrir mannréttindadómstól Evrópu ef þarf.“

Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum (FLH) hélt aðalfund 26. febrúar sl. Þar var lýst furðu á vinnubrögðunum sem svæðisráð austursvæðis þjóðgarðsins viðhafði. FLH segir að aldrei hafi verið haft samband við félagið þegar verndaráætlunin var í vinnslu.

„Eins lýsir félagið andstöðu sinni við tilhæfulausar veiðitakmarkanir innan garðsins sem það telur vera í andstöðu við þau fyrirheit sem voru gefin í aðdraganda stofnunar garðsins.“

Tillaga ekki á skjön við lög

Umhverfisráðherra birti átta síðna greinargerð vegna staðfestingar á verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er m.a. sérstakur kafli vegna athugasemda sem gerðar voru við málsmeðferð og samráðsferli við gerð tillögu stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Niðurstaða umhverfisráðuneytisins er að lög um þjóðgarðinn takmarki vald ráðherra til að breyta tillögunni að verndaráætlun „við þau tilvik þar sem talið er að hún brjóti í bága við lög eða reglugerð um þjóðgarðinn eða gegn verndarmarkmiðum þjóðgarðsins. Ekki verður séð að tillagan eða einstök atriði í henni brjóti í bága við lög eða reglugerð eða gegn settum verndarmarkmiðum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
Hermannabuxur
Hermannabuxur til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
Cavalier King Charles Spaniel til sölu Frábærir fjölskyldu hundar
Erum með yndislega Cavalier til sölu Afhendast heilsufarsskoðaðir örmerktir og æ...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....