Fréttaskýring: Íslenskum Vítisenglum fylgja afbrot

Félagar í MC Iceland setja Hell's Angels borða á félagsheimili sitt í gær. stækka

Félagar í MC Iceland setja Hell's Angels borða á félagsheimili sitt í gær. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
MC Iceland er orðið fullgildur aðili að Vítisenglum og þar með er ljóst að þessi hættulegu glæpasamtök hafa ekki aðeins náð fótfestu hér á landi heldur fest rætur. Herða á aðgerðir gegn Vítisenglum og öðrum glæpasamtökum sem hér starfa og til marks um það samþykkti ríkisstjórnin í gær að veita 47 milljónir aukalega til sérstaks átaks gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Það breytir engu um aðild MC Iceland að Vítisenglum (Hell´s Angels) að átta félagar MC Iceland hafi verið stöðvaðir á Gardermoen-flugvelli við Ósló í gærmorgun og síðan vísað úr landi þannig að þeir komust ekki á inntökuathöfn sem fyrirhuguð var í Noregi um helgina. Til marks um það þá var skilti með merki Vítisengla og MC Iceland sett utan á félagsheimili klúbbsins í gær og þess má vænta að félagar í MC Iceland muni setja merki Vítisengla á jakka sína.

Gátu tafið en ekki hindrað

Lögregla og tollgæslan hafa árum saman spyrnt við fótum gegn því að félagar í MC Iceland og forvera þess, Fáfni, yrðu fullgildir meðlimir í Vítisenglum. Yfirmaður í lögreglunni sem Morgunblaðið ræddi við í gær sagði að það hefði þó lengi legið ljóst fyrir og verið varað við því að MC Iceland yrði fyrr eða síðar fullgildur meðlimur. Tekist hefði að tefja fyrir fullri aðild en nú væri hún orðin að veruleika.

Greinilegt er af viðtölum við yfirmenn í lögreglu og tollgæslu í gær að þeir hafa verulegar áhyggjur af því að aðildin leiði til aukinna afbrota og meiri hörku í undirheimum.

Yfirmaður í lögreglunni, einn þeirra sem hvað best þekkja til starfsemi Vítisengla, benti á að með því að MC Iceland væri orðið fullgildur meðlimur í Vítisenglum gætu þeir kallað eftir ýmiss konar stuðningi frá Vítisenglum á heimsvísu. Félagar í Vítisenglum hefðu t.d. aðgang að sjóði sem er notaður til að greiða verjendum. Þá gætu þeir, lentu þeir í vandræðum, t.d. í átökum við aðra glæpahópa, kallað á liðsauka frá öðrum klúbbum Vítisengla í öðrum löndum. Í nýju hættumati lögreglu kemur fram að með fullgildingu MC Iceland aukist hætta á uppgjöri milli glæpahópa. Staðfest er að hér starfi hópur pólskra og litháískra glæpamanna sem sé þekktur af hörku og ofbeldi, auk íslenskra glæpahópa. Lögregla hefur einnig upplýsingar um að annar alþjóðlegur glæpahópur, Outlaws, sé byrjaður að koma sér fyrir hér á landi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins lítur lögregla svo á að hingað til hafi ríkt eins konar ógnarjafnvægi á milli hópanna en að með fullgildingu MC Iceland aukist hætta á átökum þeirra á milli. Félagar í MC Iceland gætu talið að þeir gætu, sem fullgildir meðlimir í Vítisenglum, færst meira í fang og aðrir hópar gætu litið svo á að þeim stafaði svo mikil ógn af Vítisenglunum að þeir yrðu að grípa til aðgerða gegn þeim.

Skipulögð og markviss afbrot

Yfirmaður í lögreglunni sem rætt var við taldi þó ekki víst að starfsemi MC Iceland myndi breytast strax. Það væru ekki endilega félagar í Vítisenglum sem fremdu afbrot heldur ekki síður ýmiss konar áhangendur sem sæju um afbrotin fyrir þá, undir þeirra stjórn. „Við höfum enga ástæðu til að ætla að það verði eitthvað öðruvísi hér. Þessum samtökum fylgja glæpir,“ sagði hann.

Bæði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, vonast eftir því að auknar rannsóknarheimildir lögreglu leiði til þess að baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi verði einfaldari og skilvirkari.

Sigríður Björk segir að baráttan standi gegn ýmsum skipulögðum glæpasamtökum sem hér starfa, þ.ám. þjófagengjum, svokölluðum vélhjólaklúbbum og eiturlyfjasmyglurum. „Þessi vinna krefst öðruvísi aðferða og meiri mannafla. Rannsóknin er flóknari enda eru afbrotin skipulögð og markviss. Það eru mörg gengi innan hvers hóps. Eitt sér um að selja þýfi, eitt sér um rukkun, eitt sér um að smygla fíkniefnum og svo framvegis. En það getur verið erfitt að sýna fram á tengsl milli gengjanna. Það fer mjög í taugarnar á mér að við í lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum skulum sífellt taka burðardýr fíkniefna en svo gengur misjafnlega að hafa uppi á þeim sem bera raunverulega ábyrgð á innflutningnum,“ segir hún.

Geti rannsakað hópa

Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, segir að ráðuneytið vinni nú að frumvarpi sem muni rýmka heimildir lögreglu til að rannsaka skipulagða glæpastarfsemi. „Það þarf að lækka þröskuldinn til að beita þeim úrræðum sem þegar eru fyrir hendi gegn skipulögðum glæpahópum,“ segir hún. Ekki sé verið ræða um ný þvingunarúrræði, til viðbótar við t.d. símhleranir og húsleitir, og eftir sem áður þurfi að fá samþykki dómara fyrir þeim. Lögregla muni ekki geta rannsakað hvern sem er, heldur verði að hafa sterkan grun og vísbendingar um brotastarfsemi.

Hún nefnir sem dæmi að nú sé erfitt fyrir lögreglu að rannsaka starfsemi glæpahópa. Það geti verið snúið að fá t.d. úrskurð til símhlerana vegna gruns eða upplýsinga um að hópurinn stundi skipulagða brotastarfsemi, ef grunurinn beinist ekki að tilteknu afbroti hjá tilteknum einstaklingi.

Halla býst við að frumvarpsdrög liggi fyrir mjög fljótlega.

Húðflúr vitna um tengsl

Lögregla á Íslandi hefur handtekið menn frá Austur-Evrópu sem bera húðflúr sem vitna um tengsl þeirra við austurevrópsk glæpasamtök. Félagar í rússneskum mafíum og glæpahópum í ríkjum A-Evrópu auðkenna sig oft með húðflúri. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa nokkrir austurevrópskir glæpamenn, sem hafa tengsl og starfa með skipulögðum glæpahópum í heimalöndum sínum, sest hér að. Lögreglumaður sem rætt var við sagði að þessir menn hefðu komið sér vel fyrir hér á landi, ækju um á fínum bílum og byggju vel, en væru samt sem áður skráðir atvinnulausir. Þeir væru með menn í vinnu fyrir sig, yfirleitt landa sína, sem þeir gerðu út til innbrota, fíkniefnasmygls og fleira.

Þá hefur Morgunblaðið fengið staðfest að hópur glæpamanna frá Póllandi og Litháen starfi saman, m.a. við að framleiða amfetamín. Þetta séu harðsvíraðir menn, hiki ekki við ofbeldisverk, og að aðrir glæpamenn á Íslandi óttist þá.

Menn af þessu tagi eru augljóslega mikil ógnun við íslenska lögreglumenn.

Lögreglumaður sem rætt var við benti á að skemmst væri að minnast grófrar árásar sem óeinkennisklæddir fíkniefnalögreglumenn urðu fyrir á Laugavegi í janúar 2008 en lögreglumenn áttu fullt í fangi með að verjast árásinni. Lögreglumennirnir bentu á að þeir hefðu bæði verið með lögregluskilti og hrópað að hér væri lögregla að störfum en árásarmennirnir, þeir þrír sem voru ákærðir, sögðust ekkert kannast við það.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Til sölu Volvo 940GL árg.91, nýskoðaður
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
Slöngurbátur 3,4 m Quicksilver
Til sölu quicksilver 3.4 m slöngurbátur í toppstandi. Lítið notaður. Gerður fyr...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...