Ekkert skyggni á köflum
Aðstæður til leitar við Hrafntinnusker í gær voru mjög erfiðar, eins og sjá má af meðfylgjandi myndskeiði sem Þór Kjartansson tók. Á köflum var skyggni nánast ekkert.
„Það var einstaklega erfitt að komast þarna uppeftir yfir daginn því þá rann allt saman í eitt í kófinu,“ sagði Þór. Auðveldara er að ferðast í slíku kófinu eftir að tekur að skyggja því þá sker ljóskeilan frá vélsleðanum sig í gegnum kófið.
„Það er mjög varasamt að reyna að komast i gegnum svona erfitt svæði eins og Hrafntinnuskerið er þar sem mikið er af hengjum og giljum. Það er erfitt og óþægilegt að fara um svæðið í slíkum veðurham þegar maður hefur ekki geislann af ljósinu,“ sagði Þór. Ljósgeislinn gerir t.d. kleift að sjá hvort hengiflug er framundan eða ekki.
Þór sagði að honum og félögum hans úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík, sem voru á vélsleðum, hafi sóst ferðin betur eftir að fór að skyggja. Þeir voru rétt á eftir snjóbílnum frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu sem fann týnda vélsleðamanninn.
Þór og félagar hans aðstoðuðu vélsleðamann úr hópnum í Hrafntinnuskeri sem hafði farið fram af hengju og skilið sleðann eftir. Þeir mokuðu sleðann upp og komu honum af stað.
Vélsleðamaðurinn sem týndist varð viðskila við félaga sína og nam staðar uppi á hæð, þegar honum var ljóst að hann hefði tapað áttum. Hann lagðist í skjól við vélsleðann og beið eftir hjálp.
Þegar björgunarsveitarmenn komu að manninum upp úr kl. 19.00 í gærkvöldi hafði hann beðið við sleðann í sjö og hálfa klukkustund. Manninum varð ekki meint af volkinu enda vel búinn og brást hann rétt við aðstæðum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 15. febrúar 2010, Innlent „Við sáum þarna þúst“
- Miðvikudagur, 24. ágúst 2011, Innlent Nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Sóttu fólk í Tindfjöll
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































